12. desember

Það er aldeilis að tíminn flýgur áfram, 12 dagar til jóla! Jólasveinarnir farnir að tínast til byggða og mikil spenna hjá Ástþóri Erni.
Við erum aðeins farin að undirbúa jólin og búin að baka og skreyta piparkökur.
Erum svo nýkomin heim frá Kaupmannahöfn, þar sem við höfðum það ansi gott. Getið séð myndir inni á myndasíðunni okkar.

Ástþór Örn finnur til piparkökumótin

Ástþór Örn ansi áhugasamur bakaradrengur


Og smakkað á fyrstu kökunum

Enn betri með smá heitu kakói

Í dag skreyttum við svo kökurnar

Hér er Ástþór Örn vinstra megin og afi Ástþór hægra megin


Ástþór Örn virðir fyrir sér skreyttar kökurnar.