4. desember
Kominn desember og við að komast í jólaskap. Ástþór Örn hefur þó mest verið í Langagerðisskapi undanfarna viku! Tók á móti afa sínum og ömmu sinni og tilkynnti
þeim stuttu seinna að hann væri fluttur inn til þeirra. Það var látið eftir ömmu, afa og barninu að fá að vinna svolítið upp af þessum tíma öllum sem þau hafa verið í burtu.
Ekki það að við foreldrarnir höfum ekki verið allt of skemmtileg þessa viku, á kafi í vinnu, verkefnavinnu og svo heimaprófi sem stóð yfir í nokkra daga.
Ástþór Örn er búinn að skemmta sér stórvel og steig inn fæti heima hjá sér í fyrsta skiptið í dag eftir rúmlega viku í burtu!!

Loksins kominn í Dal! Þeir nafnar með myndasvipinn á hreinu ;o)

Ástþór Örn fékk að skreppa í sveitina um helgina. Ansi gaman að komast aðeins á snjóþotu, keyra traktorinn, kíkja í fjárhúsin og svo framvegis

Amma greinilega verið mest á bak við myndavélina! Hér eru þeir nafnar á leið á snjóþotu


Þau gerðu voða jólalegt í sveitinni. Settu seríur í gluggana, tóku jólasveinana upp og bökuðu smákökur.
Ástþór Örn hróflaði sig aðeins á hökunni í snjónum og fannst þetta víst bara töff og heimtaði að amma hans
sendi mér símamynd af sér svona krambúleruðum!!

Notalegt að koma inn í kakó og smákökur

Krúsilíus í baði í sveitinni

Hafið það gott - ætli næstu myndir verði ekki bara settar inn eftir Kaupmannahafnarferð!