18. nóvember
Tíminn líður aldeilis! Nokkrar myndir úr vikunni sem er að líða. Við Ástþór vorum nú heima í upphafi hennar vegna hálsbólgu og hita en höfðum það þó notalegt engu að síður.
Rólegheitarhelegi fram undan enda varla hægt að vera úti í þessu frosti.

Síðasta laugardag fórum við út í smá leiðangur, Ástþóri Erni fannst vissara að taka "stóru skóflu" með.

Fórum og gáfum öndunum og gæsunum


Höfðum það svo notalegt hér heima

Bangsarnir teknir í læknisskoðun

Ástþór Örn að knúsa Kastrup gírafa...sem var einmitt keyptur á þeim ágæta flugvelli á leið heim í ágúst 2003,
þegar við þurfum að bíða þar heilan dag!

Ástþór Örn í miklu stuði hér á laugardagskvöldið!!

En á sunndaginn fékk Ástþór Örn háan hita og var ansi slappur

Á mánudag og þriðjudag voru því bara náttfatadagar

En um miðja viku fór Ástþór Örn hress á leikskólann enda hafði hann haft miklar áhyggjur af því í upphafi veikinda að
hann myndi missa af degi íslenskrar tungu sem var á fimmtudag og halda átti upp á á leikskólanum.
Þegar ég sótti Ástþór Örn sagði Ástþór Örn mér að þau hefðu sungið fyrir manninn sem stjórnaði húsunum...líka okkar.
Var þar átt við bæjarstjórann, sem hafði litið í heimsókn til þeirra.

Upptekin við bakstur! Okkur Ástþóri Erni fannst svo ógurlega langt síðan við hefðum bakað köku!
Við björguðum því í gærkvöldi og skelltum í voða "holla" súkkulaði- og döðluköku sem við höfðum ekki prófað
áður en verður örugglega bökuð oft í framtíðinni. Ástþór Örn var yfirbakari og þakkaði mér margoft fyrir að aðstoða sig!!!
Hann var líka sérlegur smakkari og kannaði hvort að döðlurnar, súkkulaðið og valhneturnar væru ekki örugglega í lagi
áður en öllu yrði hrært saman.

Ástþór Örn ansi duglegur í eldhúsinu og vildi endilega fá að vaska svolítið upp eftir baksturinn.
Hann fékk því að vaska upp "alveg einn"...eða undir mínu eftirliti svona til þess að ekki færi
allt á flot eða litli stúfur færi að hita vatnið sem kom úr krananum.

Bakarinn alsæll eftir að hafa fengið sér köku og lætur fara vel um sig!
Góða helgi!