6. nóvember
Kominn nóvember...alveg ótrúlegt. Við Ástþór Örn vorum alveg komin fram úr okkur í dag og farin að tala um afmælið hans í febrúar!! Tíminn líður svo ægilega hratt að það verður komið að því áður en við vitum af. Áttum góða helgi í rólegheitum. Ætlunin hafði nú verið að vera svolítið úti. Ætluðum að fara út að labba, gefa öndunum og fleira en veðrið var svo leiðinlegt á laugardag að ekkert varð úr...og ekkert okkar langaði mikið út að labba í fárviðrinu á sunnudaginn. Þannig að þið fáið bara inni-dundmyndir í staðinn.

Ástþór Örn ansi glaður nýkominn heim úr leikskólanum...og hvað gladdi, jú mútta var búin að taka til í herberginu hans!!

Ástþór Örn að spila. Á fimmtudaginn var tónlistarkennsla á leikskólanum og Ástþór Örn þurfti að sýna okkur það sem hann hafði lært þann daginn.
Á föstudaginn er foreldrum, öfum og ömmum boðið á tónleika á leikskólanum. Einnig verður opnuð sölusýning á listaverkum krakkanna, allt til styrktar
Lucasi vini þeirra í Argentínu sem er styrktarbarn leikskólans. Við erum því öll farin að hlakka til föstudagsins! Synd að afar og ömmur séu ýmist norður í landi eða
ekki á landinu!!

Laugardagurinn breyttist úr útivistardegi í perludag! Ég verð að viðurkenna það hér að ég hef
eiginlega aldrei vaxið almennilega upp úr því að perla og hef voða gaman að því að perla og spjalla.

Sigurður aðeins að kreista krúsídúlluna!

Ástþóri Erni fannst ráðlegra að taka með sér regnhlíf þegar við skruppum aðeins út á laugardaginn.
Þessi Tweety regnhlíf í miklu uppáhaldi.

Ansi vinsælt að leika í riddaraplaymo.

Og aftur kominn í perlurnar og stafirnir æfðir í leiðinni...ansi einbeittur!

Hér lenti svo legogeimfar um miðjan dag í gær!!

Þar sem það er nú ekkert allt of praktískt að vera með toppinn ofan í augum og Ástþór Örn orðinn afskaplega prúður í klippingu
drifum við mæðgin okkur í klippingu í dag! Ástþór Örn var ansi ánægður með sig og var orðinn öllum hnútum kunnugur á hárgreiðslustofunni
þegar við fórum þaðan!

Ástþór Örn lætur sig hafa einn mömmukoss!
Hafið það gott!