23. október
![]()
Við búin að eiga fínustu helgi sem einkenndist af útiveru í haustblíðunni og kósíkvöldum!
Í dag skruppum við svo til Sirrýar og Haraldar Daða. Ástþór Örn var búinn að hlakka mikið til heimsóknarinnar og segja öllum á leikskólanum
hvað stóð til. Þeir skemmtu sér ansi vel saman og á leiðinni heim var Ástþór Örn farinn að leggja drög að því að bjóða Haraldi Daða í heimsókn sem fyrst.

Við skruppum í búðina á laugardaginn mæðginin. Þar sá Ástþór Örn stór og mikil grasker í tilefni af hrekkjavöku.
Ég var nú ekki alveg til í að kaupa eitt þessara stóru en okkur fannst tilvalið að kaupa eitt lítið.
Ástþór Örn vissi svo sem lítið hvað hann ætlaði með þetta grasker en fannst ansi spennandi hugmynd að
skera það út og rista graskersfræin!

Ansi fínt hjá okkur. Graskerið var strax nefnt Tjúlli!

Á laugardagskvöldið var kósíkvöldið í hættu um tíma þar sem Ástþór Örn hafði slasað sig á hné!
Datt á hlaupum hér niður gangstíginn við húsið og var ansi aumur þegar við komum inn.
Það var allt hálf ómögulegt og alls ekki hægt að hafa meiddu löppina undir teppi.

Hresstist þó fljótlega!

Og nánast alveg búinn að gleyma þessum meiðslum og farinn að stimpla og lita :o)
![]()

Ástþór Örn hélt ansi skemmtilega tónleika hér í gær.

Fékk svo Sigurð með sér í smá spilerí!
![]()

Bangsabúningurinn alltaf jafn vinsæl. Ég mátti til að setja inn mynd frá því búningurinn var mátaður fyrst, í febrúar 2005!!

Í dag í heimsókninni hjá Haraldi Daða. Eftir að hafa veirð dágóða stund úti að leika komu
þeir vinirnir inn, fengu sér köku og breyttust svo í þessar ofurhetjur sem ætluðu að ná
"ljótu köllunum"!!! Við Sirrý rifjuðum aftur á móti upp búðaleiki, fegurðarsamkeppnir og æfingar á Eurovisionlögum!!!!

Þegar heim var komið hélt ofurhetjuleikurinn áfram...Batman í Spidermanfötum.

En Ástþór Örn fullvissaði okkur nú um að þarna á bakvið grímuna leyndist nú bara hann sjálfur!