20. október
Komið að enn einu helgarfríinu! Ástþór Örn veit fátt betra en helgarfrí, þó hann sé voða ánægður á leikskólanum. Vonum að það verði svona fallegt veður
um helgina eins og verið hefur undan farna daga til að hægt sé að vera svolítið úti. Sjáum til!

Alltaf gaman að vatnslita. Ástþór Örn hafði það nú orð á því að það væri ansi langt síðan hann afi Ástþór hefði
málað með honum. Skilur ekkert í þessar útlegð afa og ömmu!

Einbeittur!

Í dag þegar við komum heim mæðginin stakk Ástþór Örn upp á því að baka. Við hrærðum því í nokkur muffins.

Myndabrosið svakalega!!!!

Ástþóri Erni leist ansi vel á margar uppskriftir í bókinni...í það minnsta myndirnar!


Allt klárt fyrir þetta kósí kaffiboð

Kaffitímarnir verða nú vart betri!! Kakó og muffins.

Drifum okkur svo út seinni partinn. Ástþór Örn í nýja kuldagallanum
og með nýju húfuna.


Mikið fjör. Ástþór Örn í gervi Birkis Borkasonar úr Ronju að forða sér frá grádvergum!!!



Mikið fjör!

Lauf út um allt

Náðum einu slönguspili áður en kvöldmaturinn var til!


Ekki alveg nógu glaður þegar við Sigurður fórum að saxa á forskot hans í leiknum...

En gladdist fljótt þegar hann þaut fram úr okkur!

Enn eitt hljóðfærið hefur bæst í safnið. Ástþór Örn er duglegur að úthluta hljóðfærum og
svo er sungið og spilað saman!! Vona að nágrannarnir séu þó ekki að hlusta á gaulið í mér ;o)
Góða helgi!