3. október

 

 

 

 

Voða notalegur laugardagur að kvöldi kominn. Ætlunin var nú að fara vestur en þar var mikið rok og rigning og því ágætt að vera bara heima.

Ástþóri Erni fannst nú reyndar ansi fúlt að vera ekki að fara að kíkja í sveitina, en gleðin yfir að vera í helgarfríi bjargaði þessu!

 

 

 

Ástþór Örn í miklu stuði á laugardagsmorgni!
 

 

 

Drengurinn verður að fara að komast í klippingu...ætlum að reyna að koma því við í næstu viku.

 

 

 

Ástþóri Erni er ekkert vel við að láta þvo á sér hárið og fékk því svona hring til að hafa um höfuðið svo

að ekki fari vatn í augun. Þegar ég var lítil átti ég svona hring sem ég setti um hálsinn og þóttist vera prestur...

Ástþór Örn setur sinn um mittið og snýr sér í hringi!!!!!

 

 

 

 

Á drekasnjósleða...hvorki meira né minna :o)

 

 

   

 

 

Ástþór Örn fékk að kaupa sér smá laugardagsnammi þegar ég við vorum í Maður lifandi í morgun. Á leiðinni heim nöldraði hann ógurlega um

einhvern lakkrísmola sem hann hafði valið sér. Ég sagði þá við hann "Ástþór Örn minn, laugardagar snúast nú um margt annað en lakkrís"...þá

svaraði minn "...já mamma, líka brjóstsykur"!!!!!

 

 

 

Svaka sterkur...veit ekki hvort það megi nú þakka laugardagsnamminu!

 

 

 

 

Kominn í Kallafötin eftir að hafa drifið sig í bað. Það er voða vinsælt að loka stofunni eða standa fyrir hurðaopum -

maður verður svo að geta upp á lykilorðum og svo framvegis.

 

 

 

Mikið að gera í vélmennagerð

 

 

 

Þetta er eitt svakalegasta myndabros sem fyrir finnst held ég!!

 

 

 

Góða helgi, hafið það gott.