3. október

 

 

 

 

Kominn október...tíminn flýgur aldeilis áfram. Í dag á Vigdís frænka afmæli, til lukku. Ástþór Örn komst einmitt að því um daginn að Vigdís væri ekki aðeins

frænka hans, heldur líka vinkona. Þessa dagana er Ástþór Örn upptekinn af framtíðaráformum er alveg ákveðinn í því að ætla að verða bóndi þegar hann verður stór.

Í gærkvöldi vorum við að ræða þetta og Ástþór Örn sagði mér að hann ætlaði að verða bóndi og eiga traktor, valtara og hestakerru. Jú svo ætlaði hann að eiga þrjú börn og

ég yrði amma. Ég spurði hann þá hvort hann ætlaði að eiga stráka og stelpur. Eitthvað var hann nú efins um það og endaði á að segjast bara ætla að eiga tvo stráka

því þá gæti hann alltaf sagt "komiði strákar, eigum við að komaí traktorinn"...stelpur hafa greinilega ekki passað inn í þá mynd :o/

Það vandaðist aðeins málið þegar kom að því hver ætti að vera bóndakonan á bænum...en eftir að hafa hugsað sig um í stutta stund ætlaði hann að spyrja stúlku á leikskólanum

sem hann sagði að væri alltaf svo góð!! Ágætt að vera farinn að leggja drög að framtíðinni!!!

 

 

 

Skruppum að gefa öndunum um daginn. Ansi gaman!

 

 

 

 

Heima að hoppa á öðrum fæti, sem er mjög vinsælt þessa dagana.

 

 

 

Ástþór Örn búinn að búa til enn eina lestina. Sumar teygja sig heldur langt út fyrir herbergið hans

 

 

 

Og í framhaldi af lestarleikjunum vill það gerast að íbúðin er öll orðin að herbergi Ástþórs Arnar!!

Þetta er sjálfsagt mjög þekkt vandamál. Í það minnsta man ég að foreldrar mínir áttu í þessari baráttu nánast fram

að þeim degi er ég flutti út frá þeim!!! Á laugardaginn tókum við mæðgin okkur til og tókum ansi vel til

 

 

 

Á sunnudaginn drifum við okkur í göngutúr um Heiðmörkina. Ástþór Örn alltaf með vísindaboxið með sér

sem Vigdís gaf honum!

 

 

 

 

Sigurður og Ástþór Örn skoða Maríuhellana

 

 

Orðið haustlegt í Heiðmörkinni. Ástþór Örn fór ansi sæll heim með tvo köngla í boxinu,

sem voru svo settir í myndarlegt könglasafn herramannsins!

 

 

 

Á sunnudaginn fórum við svo í mat í Langagerðið og þangað kom líka langamma Svana. Ástþór Örn var ansi

spenntur að segja langömmu ferðasöguna frá Kaupmannahöfn.

 

 

 

 

Gott að kúra hjá afa og hlusta á sögur.