18. september
Við Ástþór Örn erum heima í rólegheitum í dag. Hefur verið að ganga augnsýking á leikskólanum sem herramaðurinn krækti sér í. Þannig að hann er bara í "einangrun" hér heima!
Hann er frekar sáttur við að fá auka helgarfrí :o) Ætli það renni ekki saman þetta langa helgarfrí og ferðin til Kaupmannhafnar. Það er búið að vera hér í nægu að snúast í dag, búið að púsla, spila, lesa, baka vöfflur og alls konar. Ástþór Örn reyndar ansi duglegur að dunda sér í herberginu sínu og ég reyni að lesa á meðan...nú eða uppfæra síðuna!

Ástþóri Erni finnst ógurlega gaman að spila á hljóðfæri og hlusta á tónlist. Það var því mikið ánægjuefni að á næstunni hefst tónlistarnámskeið
á Álfaheiði og er Ástþór Örn ansi spenntur.


Gaman að teikna

Búinn að teikna fjallið sem hún Mýsla (kindin hans Ástþórs Arnar) var á í sumar.

Ástþór Örn er orðinn mjög spenntur að fara í dýragarðinn í Kaupmannahöfn. Hann hitaði upp með því að
byggja dýragarð inni í herberginu sínu.

Ég var eitthvað að dáðst að þessum tveimur turnum en var tilkynnt að þetta væru ekki turnar heldur
gíraffar með lítið gíraffabarn...skil ekki hvernig með datt þetta með turnana í hug!!!

Við vonum að augun fari að jafna sig

Fórum áðan í slönguspilið. Ástþór Örn malaði mig og var ansi glaður með það!

Ástþór Örn áhugamaður um risaeðlur
Hafið það öll gott. Æli við uppfærum ekki bara næst þegar við setjum inn Kaupmannahafnarmyndir!