14. september
Það mætti halda að Ástþór Örn færi aldrei úr náttfötunum! Var að taka eftir því að barnið er í náttfötunum á öllum myndum sem settar voru inn síðast og flestum núna!!!!
En það er svo sem ekkert verra þema en hvert annað ;o)
Annars er allt ágætt að frétta af okkur. Ástþór Örn skemmti sér stórvel í sveitinni síðustu helgi í göngunum. Myndavélin gleymdist og síminn tók myndir sem eru svolítið of óskýrar til að setja hér inn. Ástþór Örn er orðinn ansi spenntur að fara til Danmerkur og er stefnan meðal annars tekin á Fætter BR, Tívolí og dýragarðinn.
Í dag tilkynnti Ástþór Örn mér svo um nýjustu framtíðarplön sín. Á næsta ári ætlar hann að verða tónlistarmaður. Ætli hann muni þá ekki reyna að samræma þessi nýju plön sín þeim gömlu um að verða gröfumaður, hestamaður og veiðimaður í veiðifélagi!

Um daginn var ég heldur utan við mig að lesa og áður en ég vissi af var búið að fylla stofuna af bílum! Mér leið nú bara eins og pabba hans Einars Áskels!

Og líkt og Einari Áskeli þykir Ástþóri Erni ansi gaman þegar maður nennir svo aðeins að taka þátt í leikjunum hans

Í fyrrakvöld héldum við Ástþór Örn kósíkvöld, sem eru ansi vinsæl hjá okkur báðum! Kvöldið hófst á stórskemmtilegum gítartónleikum
í eldhúsinu.

Svaka tilþrif :o)

Jarðarber á kósíkvöldi


Ástþór Örn skemmtir sér yfir poppinu

Traktorinn, haugsugan og fleiri tæki ómissandi á kósíkvöldi hjá þriggja og hálfs árs!!!

Skrapp í bað þegar við komum heim í dag og slappaði svo aðeins af yfir barnaefninu.

Ástþór Örn fékk þennan kíki um daginn og eftir það er mikið verið að kíkja út, til dæmis hvort
einhverjir fuglar sjáist í trjánum.