6. september

 

 

 

 

Bara örfáar myndir og smá fréttir. Allt fínt að frétta af okkur. Ætlum að fara vestur um helgina þar sem á að reka féð. Erum spennt að sjá hvort að okkar kindur skili sér ekki!

Ástþór Örn fór í þriggja og hálfs árs skoðun í gær. Byrjaði á því að tilkynna konunni sem tók á móti okkur það að hann væri þriggja og hálfs árs en hann "Ólille" (Ólíver!!) yrði þriggja ára bráðum

og svo þriggja og hálfs árs og þá kæmi hann í skoðun. Var nefnilega ekkert alveg á því að fara í fyrstu þar sem hann væri ekkert lasinn!! Skoðunin gekk mjög vel og Ástþór Örn tilkynnti þeirri sem var með skoðunina að hann kynni líka að lesa og skrifa!!!

Núna síðar í september ætlum við svo að skreppa í helgarferð til Kaupmannahafnar. Ástþór Örn hefur lengi verið spenntur fyrir þessu landi "sínu" og var voða spenntur þegar hann frétti af ferðinni, en það að kindurnar séu að koma af fjallinu eru nú samt stærri fréttir þessa dagana.

 

Takk fyrir kveðjurnar í gestabókina! Alltaf gaman að sjá hverjir líta hér inn á síðuna.

 

 

Ástþór Örn á nokkra búninga og svo þennan víkingahjálm. Flestir eftirmiðdagar eða kvöld fara núna í

atriði hjá honum þar sem skipt er um búninga og gerðar einhverjar kúnstir!

 

 

 

 

Babúskurnar standa alltaf fyrir sínu

 

 

 

 

 

 

Rosa stuði í baði...svona þangað til hárið er þvegið en það má endalaust nöldra yfir því.

 

 

 

 

Hér birtist í kvöld ansi sterkur og syngjandi Batman

 

 

 

 

 

Ég með stóra strákinn minn!!