3. september
Þá er kominn september og haustið farið að nálgast. Ekki það að veðrið undan farna daga er búið að vera svo gott að haustið varð ansi fjarri!!
Við Ástþór Örn skruppum í sveitina í tvo daga fyrir helgi og höfðum það ansi gott. Fórum í berjamó og fleira. Setti inn nokkrar myndir á myndasíðuna.
Nú fer haustrútínan að fara af stað og því miður ekki hægt að vera eins mikið í sveitinni, þar sem Ástþór Örn vill bara vera!!!
Hafið það öll gott og munið að okkur finnst voða gaman að fá kveðjur í gestabókina :o)

Ástþór Örn í sjóræningjastuði

Einbeittur að lita í litabók sem amma Kata færði stráknum sínum

Og aðeins sest og málað í dag áður en við fórum út í góða veðrið að tína sólber


Ástþór Örn hélt hér tónleika í dag sem tókust ansi vel. Var áheyrendum bent á að ekki mætti tala, aðeins hvísla!!

Sveitastrákurinn að flytja hrossin sín

Gítarinn mjög oft dreginn fram!