22. ágúst

 

 

Komum í gær heim úr enn einni sveitaferðinni! Höfðum það ansi gott um helgina og erum spennt að fara fljótt aftur í smá

berjaleiðangur. Haustið farið að nálgast!

 

Við viljum svo senda góðar afmæliskveðjur í tilefni dagsins til Láru Dísar í Þýskalandi, sem er tíu ára í dag og hans Kristjáns Arnar sem er eins árs í dag. Húrra, húrra, húrra!

 

 

 

 

Upptekinn við smíðar. Fékk þetta fína smíðadót frá Áslaugu og co. Við fengum aðeins að sjá framan í þær "þýsku"

mæðgur um daginn þegar þær komu hingað í heimsókn með afa Erni, Arnhildi og Kristínu Dögg.

 

 

Það var svolítið skondið um daginn þegar við Ástþór Örn horfðum á fréttir af fiskideginum á Dalvík.

Þar var tekið viðtal við Ólaf Ragnar forseta og hans frú. Ástþór Örn spurði hver þessi maður væri og ég

reyndi að útskýra fyrir honum forsetaembættið á sem einfaldastan hátt. Ástþór Örn spurði mig þá hvort hann

væri kóngur! Nei ég sagði svo nú ekki vera og fannst nú hálf flókið að útskýra lýðræði, konungræða og allt það

fyrir þriggja ára barni. Þetta fór því allt hálf út um þúfur og Ástþór Örn stóð uppi hundfúll yfir því að á Íslandi væri

ekki kóngur!!!!!!!!!! Það varð því mikil gleði um daginn þegar okkur barst póstkort frá Guðrúnu Láru í Svíþjóð af

hennar konungshjónum. Ástþór Örn sá póstkortið af þeim Gústaf og Silvíu og hefur oft skoðað síðan...Svíðþjóð er því

land í lagi að hans mati - með kóng og drottningu!!!

 

 

 

Ansi flottur í baði.

 

 

Myndabrosið æft!

 

 

Glaður að hjálpa afa að sækja Hrafn sem hafði komist út fyrir girðingu og hafði nýtt frelsið til að belja sig út af grasi!

 

 

 

 

Í fyrradag fór Ástþór Örn á hestbak og það kemur aldrei annað til greina en að fara á Frakk

 

 

Þegar ég var að fara að leggja á Frakk kom Ástþór Örn með þá góðu hugmynd að í þetta skiptið myndi

hann teyma undir mér!! Ég gat ekki samþykkt það en í staðinn fékk hestasveinninn að teyma hestinn sinn einn hring

í gerðinu.

 

 

Frekar stoltur! Frakkur hafði líka komist í veisluna með Hrafni og var því

ansi belgmikill.

 

 

 

Kominn á bak. Er að benda mér á að hann langi gjarnan að fara aðeins út fyrir gerðið og ríða sjálfur

aðeins um túnin!!!! Það þarf ekki að taka fram að þeirri hugmynd var ekki heldur komið í framkvæmd :o)