Myndir úr Dal sumarið 2006
Það fór eins og mig grunaði, að netið í sveitinni væri ekki alveg til þess fallið að vera að uppfæra síðuna okkar!
En í staðinn koma hér inn þó nokkrar sveitamyndir og loforð um að nú fari síðan að verða uppfærð oftar.
Við mæðgin erum komin heim úr sveitinni eftir að hafa verið þar síðan í lok júní. Höfum verið dugleg að fara á hestbak, komist í
veiði og svo var Ástþór Örn úti að leika nánast allan daginn.
Þó að sumarið hafi ekki verið hlýtt né sólríkt komu góðir dagar, þar sem var hægt að fara út
sokkabuxunum og setja upp derhúfuna!
Eins og fyrri ár tók Ástþór Örn virkan þátt í að mæla og vigta!
Og komst sjálfur í veiði!!
Í veiðivesti sem afi Ástþór færði honum. Amma Kata gaf honum svo fyrstu fluguna í barminn!
Í heimsókn á Bakka
Rákumst á gamlan traktor sem þurfti náttúrlega að prófa.
Í fjósinu á Bakka. Það var alveg dásamlegt þegar við vorum að keyra heim úr Borgarnesi einu sinni. Þegar við
fórum fram hjá Bakka sagði Ástþór Örn "hvenær má ég fara í kúhúsið til hennar Steinu?"!!!! Við áttuðum okkur ekki í fyrstu
á því að drengurinn meinti fjós, en líkt og fjárhús hlytu kusurnar bara að eiga heima í kúhúsi!!!!!
Að leika með traktorinn sinn.
Ástþór Örn í fullorðinstraktor...hans var aftur á móti "minn traktor"!
Skemmtilegast var þegar hann náði svo að gabba einhvern með sér á rúntinn í fullorðinstraktornum!
Oft heyrði maður "Afi, ég var að velta fyrir mér...hvort við gætum kannski farið í fullorðinstraktorinn?".
Ég ætlaði að bjarga mér einu sinni þegar ég nennti ekki að keyra hringi um hlaðið og segja honum að ég
væri nú bara svo léleg að keyra traktorinn. Þá sagði hann "Mamma, þú setur bara lykilinn í og í gang...ýtir svo á kúplinguna
og stýrir..."!!!!!!!!!!!
Ansi búralegur á hestbaki!
Eitt af fallegu sumarkvöldunum...þau gráu voru í meirihluta þetta sumarið!!
Stoltur blómaræktandi. Á leikskólanum voru sett niður fræ í vor og Ástþór Örn
fékk að taka sitt blóm með fyrir sumarfrí. Það hefur dafnað ansi vel hjá okkur og farið
að þurfa miklu meira rúm en þessa litlu skyrdollu!!
Ástþór Örn var líka duglegur að hugsa um kryddjurtirnar hennar ömmu Kötu
Skruppum í siglingu um Breiðafjörðin. Mjög gaman!
Þessi kisi stalst um borð en var hent á bryggjuna aftur, Ástþór Örn skildi nú bara ekkert í því af hverju hann mátti
ekki koma með.
Ástþór Örn kom voða oft berjablár inn, hafði þá setið úti í lynginu og tínt upp í sig!
Biggi frændi kom í heimsókn með Húna og Krummu með sér. Ástþór Örn er mikill vinur þeirra heiðurshjóna og leiddist ekki
að fá aðeins að leika sér við þau.
Brátt mun fjölga á bænum hjá Völu og Bigga því Krumma er hvolpafull. Við Ástþór Örn erum því spennt að fá að líta
til þeirra í heimsókn með haustinu!
Að Hellnum. Þetta gamla spil vakti sérstaklega mikla hrifningu.
Ástþór Örn var ekkert sérstaklega spenntur fyrir því að setjast á fjörukaffihúsið, vildi frekar rölta um í fjörunni.
Fékkst þó til að setjast og fá sér ís.
Á Arnarstapa
Eftir sumarið er Ástþór Örn að eigin sögn orðinn hestamaður, veiðimaður og gröfumaður!!!!
Hestarnir sóttu allir voðalega mikið í þennan litla herramann og gaman að sjá Ástþór Örn var öruggur innan um þá og öfugt.
Frakkur náttúrlega í sérstöku uppáhaldi. Rétt áður en ég smellti af þessari mynd heyrði ég Ástþór Örn segja:
"Alltaf þegar ég er í Kópavogi sakna ég þín svooo mikið Frakkur minn"!!!!
Píla var nú betri en enginn í leikjunum í sumar!
Fór niður í ós með afa og Hjalla frænda

Sætur sveitastrákur!
Ástþór Örn hárprúði í baði í morgun.