Sveitadvöl í júlí!

 

 

Við mæðgin erum búin að hafa það gott í sveitinni. Nokkrar myndir sem lýsa broti af því besta!!

 

 

Í byrjun júlí var unnið af krafti í kringum nýja veiðihúsið. Ástþóri Erni var boðið að prófa þessa gröfu og hefur mikið rætt um þessa stórkostlegu

reynslu sína síðan!!

 

 

Í rólegheitum fyrir utan nýja veiðihúsið

 

 

Kúrt hjá Pílu

 

 

Við pabbi skruppum á hestbak um daginn og komum við hjá Ástþóri Erni og ömmu Kötu. Hann fékk því aðeins að prófa að

setjast á bak.

 

 

Kominn á bak!

 

 

Ansi sæll með tilveruna á Frakk sínum. Hann lánar mér hann stundum upp á náð og miskunn!!!!

Davíð frændi gaf okkur í Dal ansi fínan hnakk fyrir krakka, sem við ætlum nú að fara að reyna líka.

 

 

 

Eins og við hin vill Ástþór Örn fara sem oftast á hestbak. Á bak við sést Arnaldur vinnumaður í sumargír!!!

 

 

Ástþór Örn við Búðarkirkju

 

 

 

Það var dásamlegt þegar við gengum fram á þessar kindur. Þá sagði Ástþór Örn "Halló!  Ég heiti Ástþór Örn...get ég

eitthvað aðstoðað ykkur?"!!!!

 

 

 

 

Sigurður Ágúst leit í heimsókn til okkar um daginn. Hann á ansi erfitt með að komast í sumarfrí en gat þó tekið langa helgi.

Við notuðum góða veðrið og sveitasæluna og fórum í "picnic".

 

 

 

 

Ástþór Örn að gera æfingar!

 

 

 

Að teikna mig og sjálfan sig að breytast í skrímsli...en góð skrímsli, breytir öllu!

 

 

Ástþór Örn er ansi upptekinn af því þessa dagana að skrifa stafi. Um daginn tók  ég eftir því að hann var til dæmis

búinn að skrifa "H" um allt í rykið á bílnum hans pabba!!!

 

 

 

 

Orðinn ansi laginn við að keyra traktorinn sinn

 

 

 

 

 

Á hlaupum á leið í veiðihúsið til ömmu

 

 

Kominn með svolítinn lubba!

 

 

 

 

Píla enn og aftur að slaka á í lynginu á meðan Ástþór Örn ærslast í kringum hana!!