26. júní
Við drifum okkur í sveitina í síðustu viku. Héldum upp á afmæli afa Ástþórs en auk þess renndum við fyrir laxi og fórum á hestbak.
Við mæðgin verðum svo trúlega í sveitinni þó nokkuð í júlí að vinna og slappa af! Reynum kannski að uppfæra síðuna eins og sveitanettengingin leyfir. Þið lítið við hjá okkur ef þið eigið leið um nesið.
Ástþór Örn á traktornum. Nennir stundum ekki að koma sér áfram sjálfur í mölinni...þá er nú gott að fá einhvern til að ýta sér áfram!
Viktor tók við af Arnaldi! Minn hinn ánægðasti með þetta fyrirkomulag
Ástþór Örn er ansi viljugur að hjálpa til í sveitinni og er hér að aðstoða við það að færa út fyrir hestana.
Svo er ágætt að slappa af og fá sér hundasúru en Ástþóri Erni þykir þær afskaplega góðar.
Alltaf gaman að taka rúnt á traktornum
Hestunum gefið gras
Ástþór Örn hermir eftir öllu sem Arnaldur og Viktor gera!!
Tíminn líður aldeilis! Þessa herramenn passaði ég báða þegar þeir voru oggulitlir! Þeir farnir að hafa ofan af fyrir
syni mínum núna!!
Við dúllurnar!!!
Engin Trýna til að leika sér við þannig að Píla er búin að liggja og slappa af síðustu vikuna.
Hún kann að slappa ansi vel af hún Píla!!!
Og mættur í garðinn hjá ömmu Kötu í Langagerðinu
Trýna og Ástþór Örn. Trýna er enn ansi aum eftir óhappið um daginn. Getur ekkert stigið í annan framfótinn
og er enn svolítið vönkuð. En vonandi að hún nái sér.
Í fína Spidermanjakkanum sem Ali vinur hans færði honum í Tyrklandi.
Gaman að blása sápukúlur í góða veðrinu!
Ástþór Örn var búinn að langa ansi lengi í víkingahjálm. Reyndar var hann búinn að biðja mig
nokkrum sinnum um "vísindahatt" en ég áttaði mig ekki alveg á því hvernig hattur það væri!!
Ég ætlaði nú að hengja mig í smáatriðin og vilja frekar búa til réttan hjálm...þar sem víkingarnir okkar voru víst
aldrei með svona horn á hjálmunum sínum, en Ástþór Örn og amma Kata gáfu ekki mikið fyrir þessar kenningar mínar og skelltu
sér á einn hjálm í Rammagerðinni!! Ástþór Örn hér kominn í víkingaham, ansi grimmur sýnist mér :o)