14. júní
Nokkrar myndir úr sveitaferðinni síðustu helgi. Ástþór Örn skemmti sér konunglega, enda enn nokkur lömb heima sem fóru á fjall á sunnudaginn. Ástþór Örn var reyndar ekki alveg sáttur við það að kindurnar væru sendar á fjall í sumar!! Skoðuðum svo nýtt folald sem fæddist á
meðan við vorum í Tyrklandi (því miður engar myndir af því hér!). Svo skruppum við í veiðiferð, fengum ekki fisk en lentum í þeim
mun skemmtilegri fuglaskoðunarferð!
Ástþór Örn fékk svo smá hitavellu á sunnudagskvöldið og var heima á mánudag og í gær. Í dag fór hann svo í fyrsta skiptið á leikskólann frá því
áður en við fórum út. Það gekk vel, enda gaman að hitta vinina auk þess sem nokkur ný börn hafa byrjað á Brekku frá því hann var þar síðast.
Kominn á traktorinn góða
Forystukindur með lömbin sín
Á leið heim með blóm handa ömmu Kötu
Við Sjávarfoss. Við gengum og óðum niður í Sökkur í von um að fá sillung í soðið!
Ástþór Örn var orðinn svolítið þreyttur á fiskleysi og bið. Afi Ástþór hlóð því þetta fína sæti, sem var
ansi mikið sport.
Afi gabbaður til að taka á háhest á leiðinni til baka.
Á meðan dótið var tekið saman sat Ástþór Örn á pallinum og las Andrés Önd
Þeir nafnar voru ansi þreyttir þegar heim var komið
Fuglabókin dregin fram til að skoða þá fugla betur sem við höfðum séð fyrr um daginn
Heilsað upp á hestana
Við pabbi stilltum Ástþóri Erni upp við þessa birkiplöntu 20. júní 2004 og ég endurtók leikinn núna um helgina. Sýnist hvort tveggja dafna vel, Ástþór Örn og birkið!
Öll voða hugsi og enginn til í að brosa í myndavélina!