13. maí

 

 

Allt gott að frétta af okkur. Vikan liðið ansi hratt og farið að styttast í að við förum í fríið. Ég fór í foreldraviðtal í vikunni á leikskólanum, sem gekk mjög vel. Ástþór Örn alltaf hinn prúðasti og gengur vel...á það til að tala heldur mikið...hmmm...hvaðan ætli hann hafi það?!?!?!

Ég í vinnutörn fyrir skólann...ætla að reyna að skila einhverju áður en við förum út. Ætli það verði nokkuð uppfært fyrr en við komum til baka úr fríinu. Ástþór Örn er orðinn ansi spenntur að fara til útlanda. Er alltaf að spyrja mig hvernig maður segi hitt og þetta á ensku...en skáldar nú mest upp sjálfur og er að segja mér hvernig hitt og þetta útleggist á útlenskunni!! Í vikunni þegar hann var að fara að sofa, ég búin að lesa og var að breiða yfir hann sá ég að hann var eitthvað hugsi. Hann spyr mig svo: "Mamma, eru rúm á Tyrklandi?". Eitthvað verið að spá og spekúlera hvað hann sé nú á leiðinni út í!!

 

 

 

Úti í garði í gær. Fallegasta veður en svolítil gjóla...eða skjóla eins og Ástþór Örn segir.

 

   

 

Ansi heppinn að hafa þennan stóra sandkassa hér fyrir utan.

 

 

 

 

 

Aðeins slappað af með smá Matthildarkókómjólk sem er í miklu uppáhaldi.

Ég var með lesefni með mér og gat því setið á bekknum á meðan Ástþór Örn lék sér.

 

 

 

Þurfti svolítið að tala drenginn á að koma inn aftur, eftir að hafa verið úti í góða stund!

 

 

 

Ástþór Örn að raða bílunum sínum!

 

 

Jarðarberjaæði hefur gripið um sig á heimilinu og veit Ástþór Örn fátt betra en að fá nokkur

jarðarber í eftirrétt á kvöldin :o)

 

 

 

Afi Ástþór kom og sótti nafna sinn í morgun. Hann ætlaði að fá að eyða deginum með afa og ömmu.

Sigurður á Hellisheiðinni og ég...já á leiðinni að fara að lesa!

Ástþór Örn ætlar að fá að skottast svolítið með ömmu Kötu í næstu viku á meðan við Sigurður náum vonandi

að létta svolítið af okkur!

 

 

 

Hafið þið það öll gott. Sjáumst í júní :o)