8. maí

 

 

 

Allt gott að frétta af okkur, áttum ansi fína helgi í góða veðrinu. Hér má sjá brot af fjörinu síðustu daga!

 

 

 

Á föstudaginn var danssýning á leikskólanum. Hér eru 2003 krakkarnir af Brekku...enn hálf syfjuð enda klukkan bara níu!

Ég, Sigurður og afi Ástþór vorum mætt til að fylgjast með.

 

 

 

Ástþór Örn var voða duglegur!

 

 

Þau voru eins og gömul hjón hann og hún Anna vinkona hans.

 

 

 

 

Á laugardaginn fórum við með Vigdísi og Ólíver að sjá leikritið um hana Ronju. Skemmtum okkur

öll mjög vel. Þeir frændur voru ansi prúðir þegar komið var í sætin. Ólíver var að fara í fyrsta skiptið

og þegar sýningin var búin var hann hvergi nærri búinn að fá nóg og kallaði "aftur"!! Góð meðmæli með sýningunni myndi ég segja!!

Ástþóri Erni fannst eftirminnilegast þegar grádvergarnir reyndu að ná Birki og Ronju...mikið talað um það.

 

 

 

Kominn heim úr leikhús- og kaffihúsaferðinni. Núna eru risaeðlur og skrímsli ansi "heit" og hér minnir mig að

hann hafi verið að teikna mömmu sína...að breytast í skrímsli...veit ekki alveg hvernig á að taka því?!!?

 

 

Vigdís kom færandi hendi á laugardaginn þegar hún sótti okkur í leikhúsið. Ástþór Örn fékk

tösku með skemmtilegu rannsóknardóti eins og hann kallar það sjálfur! Lukt, stækkunargler, áttaviti og fleira skemmtilegt.

 

 

Allt grandskoðað með stækkunarglerinu!!

 

 

 

Í gær var Ástþór Örn úti á svölum að skoða kóngulær. Náði nokkrum í boxið sitt, sem er með

stækkunargleri í lokinu. Við gátum því fylgst svolítið með þeim áður en þeim var sleppt aftur!

Afi Örn var hjá okkur í gær og vildi Ástþór Örn endilega fá hann til að kíkja svolítið á kóngulær líka.

 

 

Mjög spennandi! Hann tók ekki annað í mál í fyrstu en að vera í flíspeysu drengurinn þrátt fyrir blíðuna á svölunum!!

 

 

 

Ástþór Örn með afa og pabba.