Sumardagurinn fyrsti

 

   

Áttum ansi fínan síðasta vetrardag í gær. Ástþór Örn var í fríi á leikskólanum og fékk því að vera hjá afa og ömmu í Langagerðinu.

Skemmti sér ansi vel þar. Hann og amma hans fóru líka smá bæjarrúnt og enduðu í heimsókn hjá Hröbbu frænku. Í gærkvöldi

var okkur svo boðið í fjölskylduboð til Vigdísar og co í Hveragerði. Þeir frændur skemmtu sér ansi vel saman eins og venjulega.

Í morgun fékk Ástþór Örn smá sumargjöf frá okkur og var ansi glaður, smá Playmodót í safnið. Fórum svo í hádegismat í

Langagerðið. Þar fékk Ástþór Örn ansi veglega sumargjöf, svo ekki sé annað sagt...dráttarvél! Það þarf ekki að taka það

fram að Ástþór Örn varð himinsæll með gjöfina og sagðist vera orðinn bóndi!!!!

 

 

  

 

 

Ástþór Örn alltaf spenntur fyrir nýjum hljóðfærum!

 

 

...og dráttarvélum!! Hann trúði því nú varla í dag að verið væri að færa honum svona flotta græju.

 

 

Þarf aðeins að æfa sig á pedulunum en gekk þó bara vel að koma sér áfram með smá aðstoð

 

 

 

"...þetta var falleg ferð" sagði Ástþór Örn þegar hann hafði fengið að keyra aðeins um botnlangann!!

 

 

 

 

 

 

Kátir nafnar. Ástþór Örn er farinn að segja öllum að segja "ís" þegar tekin er mynd! Afi hlýddi að sjálfsögðu!

 

 

Enn svolítið kvefaður og þrátt fyrir að í dag sé sumardagurinn fyrsti var aðeins of kalt til að vera marga

klukkutíma úti, Ástþór Örn fékk því að taka græjuna inn.

Hann ætlar svo að fá að fara með afa og ömmu í sveitina á morgun og verður dráttarvélin tekin með. Enda fara þessi tryllitæki

jú betur þar en í borginni!!

 

 

Gleðilegt sumar!