Páskar í sveitinni  

 

 

    Á laugardaginn skruppum við vestur í Dal. Höfðum það ansi gott en það var því miður

ekki hægt að vera mikið úti vegna leiðindaveðurs. Vorum því mest inni í rólegheitum að borða góðan mat og páskaegg, spila

og fleira.

 

 

    

 

Ástþór Örn lagði sig aðeins á leiðinni vestur

 

  

 

Á páskadagsmorgun að opna eggin, ansi spennandi!

 

 

Í pappaegginu leyndist þetta fína trúðanef, Playmodraugur og smá nammi. Í púkaegginu frá

afa og ömmu var aftur á móti fullt af sælgæti sem dugar höldum við sem laugardagsglaðningur

eitthvað fram eftir ári!!

 

 

 

Sunneva, Áslaug og Sverrir voru í sveitinni yfir páskana. Hér er Sunneva búin að finna sitt egg og

Ástþór Örn mættur í smá bragðprufu!!

 

 

Í fjárhúsunum

 

 

 

Sauðburðurinn hefst í Dal eftir um það bil tvær vikur og erum við að vona að við getum litið í

heimsókn þegar hann stendur yfir.

 

 

Ansi kalt í gær, en við létum okkur hafa það að setjast aðeins út í sandkassa

á leiðinni úr fjárhúsunum.

 

 

Með elpakinnar og páskaegg!

 

   

 

Þeir gestir í Dal sem ekki kunnu Undrahattinn með Ása í bæ lærðu lagið fljótlega enda í miklu uppáhaldi hjá Ástþóri Erni!

 

 

Ástþór Örn með fullan munn af páskanammi

 

 

Í morgun skruppum við svo aðeins og heilsuðum upp á hrossin.

 

 

Frakkur teygir sig í átt að þeim nöfnum í von um brauðmola!

 

 

Kuldaboli beit svolítið í kinnarnar!