17. apríl

 

 

                  Vonum að þið hafið öll haft það gott um páskana. Við höfðu það ansi gott. Kalkúnaveisla í Hveragerði, afmælisdagur Sigurðar,           fermingarveisla og svo ferð í sveitina! Á morgun er svo leikskóli en svo er aftur komið frí hjá Ástþóri Erni út vikuna

            vegna skemmti- og námsferðar starfsfólksins á Álfaheiði til Englands. Amma og afi munu sjálfsagt koma ansi sterk inn eitthvað

af þessum frídögum!

 

 

Ástþór Örn mættur með gítarinn...já og húfuna!

 

 

"...þegar ég kem eigið þið að klappa" segir Ástþór Örn alltaf áður en atriðin hefjast!!

 

 

Okkur er ekki aðeins boðið upp á tónlistaratriði  hér á kvöldin!!

 

 

 

Ástþór Örn að baka afmælisköku fyrir Sigurð

 

 

Að morgni þess 14. var Ástþór Örn tilbúinn með pakkann handa pabba sínum

 

 

Og að sjálfsögðu fylgdi pakkanum hjálp við að taka hann upp :o)

 

 

Við mæðgin að undirbúa smá morgunkaffi, hér er hrært í amerískar pönnukökur

 

 

Afi Ástþór kíkti aðeins inn til okkar, enda mikill aðdáandi morgunverðarboða. Við fengum okkur amerískar pönnukökur

með öllu tilheyrandi, nýbökuð croissant og alls konar! Á eftir var svo afmæliskaka og gott kaffi.

 

 

 

 

Sigurður Ágúst bað um ostaköku að hætti Ástu frænku. Við óskinni var orðið og sérstök

hátíðarútgáfa af kökunni búin til!

 

 

 

 

Ástþór Örn vildi svo endilega að blásið yrði á kerti þegar afmælissöngurinn hafði verið sunginn.

 

 

Seinna um daginn var svo Ástþór Örn orðinn vagnstjóri og farinn að keyra um víðan völl

með farþega!

 

 

 

Stórvinirnir Engilráð andarungi og Ástþór Örn.