9. apríl

 

 

Kominn apríl og páskafríið nálgast. Tíminn liðið svo hratt og svolítið síðan hefur verið skrifað. Allir orðnir heilsugóðir...7,9,13!! Ferðin til Kaupmannahafnar gekk vel og Ástþór Örn hafði það ansi gott hjá ömmu Kötu á meðan. Ástþór Örn óskaði sér king kong og krókódíl frá Danmörku og fundum við sitt hvað í Fætter BR sem gladdi herramanninn. Vikan hefur svo gengið sinn vana gang, Ástþór Örn fengið að vera heilmikið hjá afa og ömmu í Langagerðinu eftir leikskólann á meðan ég hef setið á bókasafninu. Höfum svo haft það ansi gott um helgina. 

Við mæðgin hittum afa Ástþór og ömmu Kötu í bænum á laugardaginn. Kíktum á Listasafnið, fengum okkur hádegismat og röltum svo aðeins í bænum. Í gærkvöldi fórum við svo í mat í Langagerðið og var mikil spenna hjá Ástþóri Erni þar sem Biggi frændi ætlaði að 

koma með hundinn sinn, hann Húna!

Þeir nafnarnir skelltu sér svo í bíó í dag og sáu Ice Age númer 2. Skemmtu sér báðir mjög vel.

 

 

 

Nokkur lög tekin á munnhörpuna!

 

 

 

 

 

Biggi, Húni og Ástþór Örn

 

 

 

Rosa fyndinn á leiðinni út í skóm af mér!!

 

 

Nafnarnir í vöfflukaffi eftir bíó

 

 

Dundað sér við að perla

 

 

Ansi fínt! Ástþór Örn var lengi framan af ansi duglegur að virkja mig og afa sinn í að perla en hélst ekki lengi

við sjálfur!!

 

 

   

 

Ástþór Örn er ansi spenntur fyrir öllu sem við kemur Kalla á þakinu. Í dag fékk hann geisladiskinn úr leikritinu og vildi náttúrlega fara

í Kallafötin sín og hlusta. Einar Áskell er reyndar orðinn ansi vinsæll líka. Bækurnar verið vinsælar og svo gaf afi Ástþór honum sögurnar á

DVD sem hefur aukið áhugann á Einari Áskeli til muna!

 

 

 

Heimsins besti Kalli!!