21. mars

 

 

Af okkur er allt ágætt að frétta en síðasta vika var heldur óskemmtileg þar sem flensan herjaði á okkur mæðgin. Ástþór Örn lagðist á sunnudagskvöldinu fyrir viku og ég á miðvikudaginn. Ég var því heima með hann lasinn fyrstu dagana og hann var svo að verða hress þegar ég lagðist! Á fimmtudaginn "fluttum" við svo í Langagerðið til að passa hundana á meðan þau hjón skruppu til Parísar. Þar dekruðu þau við sig á meðan við vorum á náttfötunum og létum fara vel um okkur í Langagerðinu. Ástþór Örn var bara heima að safna kröftum, enda ekki gott að fara af stað og snemma. Fór svo hress á leikskólann í gærmorgun. Við fluttum svo heim aftur í gær og við mæðgin að komast í sína rútínu aftur, vonandi að Sigurður eigi ekki eftir að leggjast.

 

 

 

 

Ástþór Örn eignaðist þenna fína gítar um daginn og er ansi duglegur að spila. Vinsælasta lagið er

"Dvel ég í draumahöll" og "Daginn í dag"!!!

 

 

Í veikindunum tókum við forskot á páskana og fengum okkur páskaegg...enda lækningarmáttur súkkulaðis ótvíræður!

 

 

 

Nýjasta æðið: Bingó!!!

 

 

 

Ástþór Örn kom heim í gær hlaðinn gjöfum. Meðal þess sem afi og amma drógu upp úr töskunum voru

nokkrir sjóræningjar í safnið.  Þarna sést líka kassinn undan Spiderman og fleiri fígúrum sem hafa þann vafasama titil að vera

"ljótu kallarnir"!! Þeir eru nú samt flestir sýnist mér ósköp góð grey...í það minnsta voru þeir farnir að dansa saman sumir hverjir í

gærkvöldi og fleira í þeim dúr!!!!!

 

 

Og einnig fékk hann þessa Batman-húfu sem sló alveg í gegn.

 

 

Ástþóri Erni þykir mjög flott að vera með skyggnið aftur. Hann var hér mikill töffari í gærkvöldi í nýjum

íþróttaskóm og með derhúfuna ;o)