Dalur í mars
Datt í hug að setja inn nokkrar myndir úr sveitaferðinni um daginn!
Við höfðum á orði þegar við komum á föstudeginum að það væri ekki eins mikið vor í lofti og þegar við vorum
í Dal í lok febrúar
Það var að sjálfsögðu byrjað á því að fara í fjárhúsin. Ástþór Örn heilsar hér upp á Blíðfinn...
sem er einstaklega geðgóður hrútur í eigu ömmu Kötu.
Og þegar við höfðum eytt góðum tíma í fjárhúsunum var kíkt í traktorinn
Ansi góð samsetning, pollar og svolítill ís!
Ástþór Örn að horfa í gegnum "glugga"!!!
Kossi skellt á Pílu!
Píla og Trýna alltaf til í eitthvað grín!
Alveg búinn á því eftir alla útiveruna :o)
Á sunnudeginum var svo kominn alvöru vetur og drifið í snjókarlagerð!
Píla og Trýna fylgdust með af áhuga
Ástþór Örn duglegur að rúlla
Og snjókarlinn klár. Ástþór Örn nefndi hann "Svanhildur Anja snjókarl"!!!!!
Drifum okkur svo á snjóþotu, ansi gaman
Smá taktar! Brekkan sem betur fer hvorki löng né brött ;o)
Lítill álfur að gægjast!
Litum við til hestanna. Þeir voru glaðir að sjá okkur eins og venjulega.
Ástþór Örn að taka smá lúr undir lopapeysunni hans afa Ástþórs
Það var ansi langt í vorið þegar við fórum úr Dal, en ekki svo langt í sumarið samkvæmt dagatalinu.
Við erum farin að hlakka til sauðburðarins, veiðiferða, göngutúra í góða veðrinu, hestaferða og fleira og fleira!