6. mars

 

 

Fyrsta vikan í mars leið hratt eins og raunar flestar vikur undan farið! Ástþór Örn var ekkert alveg á því að vera kominn úr sveitinni, sem kom aðeins niður á stemmningunni þegar mæta átti á leikskólann. Reyndi stundum að telja mér trú um það að leikskólinn væri lokaður!!

En það var ansi gaman hjá þeim á öskudaginn og Ástþór Örn var ansi upptekinn af öllu tilstandinu...held hann hafi helst viljað setja upp tunnu hér í stofuna og slá köttinn og slatta af poppi reglulega úr henni!!

Í gær fórum við Ástþór Örn og afi Ástþór í Þjóðleikhúsið að sjá Klaufa og kóngsdætur og skemmtum okkur öll mjög vel. Ástþóri Erni fannst Svínahirðirinn skemmtilegasta sagan en ég aftur á móti háskældi yfir Litlu stúlkunni með eldspýturnar!! 

Þessa dagana er Ástþór Örn líka voða upptekinn af ensku. Þegar hann heyrir einhver lög í útvarpinu (sem flest eru jú á ensku) spyr hann mig "mamma, er þetta enska?"!! Hann lærði nokkur orð hjá langömmu sinni á finnsku og vill greinilega fara að bæta ensku við. Hann spreytir sig gjarnan í einrúmi og heyrir maður hann stundum fara með þessi fáu orð eins og páfagaukur. Og svo syngur hann "don´t worry-be happy", en hann sá strák syngja það í sjónvarpinu um daginn og varð ansi hrifinn!!!

 

Í dag á svo hann elsku Ólíver okkar afmæli, orðinn tveggja ára! Til hamingju með daginn. :o)

 

 

 

Ástþór Örn stundum ansi þreyttur hér seinni partinn og lítið hægt að gera til að halda herramanninum vakandi!

 

 

 

Ástþór Örn er ansi upptekinn af öllu sem tengist vinnu Sigurðar...vinnubíllinn er alveg það merkilegasta í heimi til dæmis.

Hann er alveg með á hreinu hvaða tegund hann er og að hann er "pikkpökk"!!!!! (pick-up!)

Þegar hann fékk að máta hjálminn vorum við vinsamlegast beðinn að kalla hann Bubba.

 

 

Ástþór Örn Doddaaðdáandi var ansi glaður með þessi rúmföt. Doddi og Eyrnastór fá að kúra þarna

hjá honum líka!

 

 

 

Lítill bangsi á leið í leikskólann að morgni öskudagsins. Þegar hann kom heim var svo farið í íþróttaálfsbúninginn og þar

á eftir sett upp Batmangríman og skikkjan.

 

 

   

 

Í risaeðluleik...vildi að ég hefði líka getað tekið upp "leikritið" sem var flutt í þessum leik hans!!!

 

 

 

Á daginn þykir Ástþóri Erni ansi notalegt að sitja uppi í rúmi og lesa og fá að hlusta á eitthvað skemmtilegt.

 

 

 

Og kominn með gítarinn!! Ég var beðin að setja band á "gítarinn" svo þetta væri nú almennilegt ;o)

 

 

 

Afi kominn í heimsókn og fenginn til að lesa svolítið

 

 

 

Ástþór Örn að leika sér við Toolo dót. Hann leikur mikið með þetta Legodót á leikskólanum en því

miður er hætt að framleiða það. Þetta er eiginlega svona tæknilego fyrir byrjendur. En Toolo dótið gátum við fengið

að kaupa af gömlum lager ítalskrar leikfangaverslunar!!

 

 

Á laugardaginn fórum við aðeins út að labba og hér er Ástþór Örn aðeins að fá að róla á leikvelli sem við gengum fram hjá

 

 

Og það var líka rosa fjör á hestbaki

 

 

 

Ástþór Örn hljóp svo allan tímann og fannst alveg æðislega gaman í þessum göngutúr

 

 

 

Við mæðgin á leiðinni í leikhúsið í gær.

 

 

 

Ástþór Örn búinn að koma auga á eitthvað skemmtilegt

 

 

 

Nafnarnir fyrir utan leikhúsið.