Og enn fleiri sveitamyndir
Það hafði ringt svolítið í Dal á meðan við skruppum í Hólminn og því dreif Ástþór Örn sig í pollagallann og hoppaði þarna í
þessum tveimur pollum sem mátti finna á veginum!
Við Ástþór Örn drifum svo Pílu og Trýnu í göngu...reyndar var Ástþór Örn fljótur að úthluta okkur hlutverkum þar
sem ég var Múmínmamma, Píla í fyrstu Hemúllinn en fékk svo að vera hin ljúfa Snorkstelpa, það þarf ekki að koma á óvart að
Trýna var hin ósvífna Mía og hann sjálfur Múmínsnáðinn
Svolítið þungbúið veður en yndislega hressandi að fá sér göngutúr
Þegar hér var komið við sögu var Múmínsnáði kominn á sjó!
Sællegur kominn inn úr göngunni
Alltaf vinsælt að hanga aðeins í vinnuherberginu hjá afa. Þessa helgina fylgdist Ástþór Örn með fluguhnýtingum
Og ansi gaman að bregða á leik með þessar fínu fjaðrir og hár sem afi notar í flugurnar!
Í dag var svo komið fallegasta veður og hér er ég á leið til þeirra nafnanna sem voru að huga að plöntunum
Það hljóp svo heldur betur á snærið hjá Ástþóri Erni þegar hann kom rennandi heim með afa á traktornum.
Gísli var þar kominn á öðrum traktor og bauð Ástþóri Erni með sér í smá ökuferð.
Ástþór Örn var ansi einbeittur farþegi
Ástþór Örn var náttúrlega mikið meira en til í að vera lengur í sveitinni en nú tekur alvara lífsins við hjá okkur mæðginum!
Hafið það öll gott :o)