Dalur í  lok febrúar

 

 

 

 

Þá erum við komin heim eftir ansi vel heppnaða helgi í Dal. Höfðum það afskaplega gott og var Ástþór Örn ekkert á því að fara heim í dag. Við vorum líka voða dugleg að vera úti að leika, fara í fjárhúsin og fleira. Borðuðum svo líka voða mikið af góðum mat og fórum í "heita pottinn". En við stefnum bara á aðra sveitaferð fljótlega og verðum þá vonandi öll fjölskyldan á ferð! Af fjölda mynda mætti kannski halda að við hefðum verið í mánuð en ekki langa helgi ;o) 

 

   

 

 

Kominn í Dal á föstudaginn og búinn að fá afa til að lesa Dodda, sem er í miklu uppáhaldi!


 

Forskot tekið á bolludaginn

 

 

Ástþór Örn vildi svo að sjálfsögðu drífa sig sem fyrst í fjárhúsin.

 

 

Og hér vinstra megin er hún Mýsla. Ástþór Örn hlakkaði ansi mikið til að sjá kindina sína og er ansi stoltur

fjárbóndi!!

 

 

 

Blíðfinni gefinn smá brauðbiti

 

 

 

 

Eftir ferðina í fjárhúsin settumst við Ástþór Örn í sandkassann í góða veðrinu

 

 

Fórum svo í smá gönguferð með afa Ástþóri til að skoða plönturnar sem við settum niður síðasta sumar

 

 

Ástþór Örn gat svo virkjað afa sinn einn rúnt í traktornum :o)

 

 

Fleiri sveitamyndir