23. febrúar
![]()
Helgarfríið hafið hjá Ástþóri Erni en við mæðgin ætlum að skreppa í Dal á morgun. Förum samferða ömmu Kötu en afi Ástþór fór í dag. Sigurður Ágúst verður eftir í borginni, þarf að vinna og fara í afmæli. Ástþór Örn er orðinn ansi spenntur og vonumst við eftir góðu veðri til að geta verið svolítið úti en svo á náttúrlega að kíkja í fjárhúsin og á hestana. Við segjum því bara góða helgi, hafið það gott!
Og gestabókin var bara alveg hætt að virka þannig að við urðum að setja upp nýja gestabók, sem vonandi virkar betur. Þið verðið að vera dugleg að senda okkur kveðjur í þessa nýja galtómu!!
Ástþór Örn fór í smá bæjarferð í dag með smá afmælispening! Valdi sér Playmo þyrlu (kom ekki á óvart!) og
joggingbuxur (kom mér aðeins meira á óvart þar sem ég hélt að hann myndi nú ekki velja sér föt!!).
Nýja rúmið reynist ansi vel og Ástþór Örn sefur þar ansi vært. Í dag kom svo þessi fíni
Batmanlampi í hús frá ömmu Kötu.
Látið fara vel um sig!!
Sætu feðgar að lesa :o)