21. febrúar

 

 

Fyrsti venjulegi dagurinn eftir hátíðarhöldin! Ástþór Örn fór ansi glaður á leikskólann með Batmantöskuna sína sem hann fékk í afmælisgjöf. Vonum að hann haldi ekki að enn verði haldið upp á þriggja ára afmælið í dag. Skemmtilegt að afmælinu manns sé fagnað með manni marga daga í röð!! Ástþór Örn ansi glaður með þetta allt saman og þykir mjög merkilegt að vera orðinn þriggja ára. Segir okkur Sigurði frá því að hann hafi átt heima í Danmörku þegar hann var lítill, eins og sé ár og öld síðan!

Eitthvað hefur Gestabókin víst verið meira eða minna óaðgengileg undan farna daga og hafa kvartanir borist okkur vegna þess! Ég vona að hún hætti þessum dyntum og þið getið sent kveðjur :o)

 

 

 

Um daginn kom ljósmyndari á Brekku og tók einstaklingsmyndir og "bekkjarmynd". Útkoman þessar fínu myndir!

 

 

 

 

 

Ástþór Örn fékk íþróttaálfsbúning í afmælisgjöf frá afa Ástþóri og ömmu Kötu á laugardaginn. Er mjög spenntur fyrir

Latabæ og búningurinn sló því alveg í gegn. Á laugardagskvöldið vorum við eitthvað að spjalla áður en hann

fór að sofa og ég var að segja honum að þegar hann myndi vakna á afmælisdaginn fengi hann pakka frá okkur Sigurði.

Hann sagði þá mjög glaður "kannski Sollubúning"!!!

 

 

 

Þessi íþróttaálfur var sem betur fer öllu rólegri en sá sem birtist á skjánum!!!!!!