9. febrúar
Merkisdagur í dag! Guðrún Lára vinkona okkar og Ingibergur í eyjunum eiga afmæli og svo er þetta jú dagurinn sem
áætlaður var að yrði afmælisdagur Ástþórs Arnar...sem ákvað að bíða svolítið með að koma í heiminn!!
Ástþór Örn er ansi meðvitaður um að hans afmælisdagur er ekki svo langt undan og minnir reglulega á hann. Annars er hann líka
ansi upptekinn af nöfnum allra og af hverju þeir heita þeim. Hann spyr okkur, afa sinn og ömmu og þær á leikskólanum oft út í nöfnin okkar.
Þegar hann er svo sjálfur spurður er hann oftast með svarið á reiðum höndum. Nú er svo búið að kaupa "stórustrákarúm" og það komið
í hús og vonum við að dýnan verði til á morgun. Í dag fékk Ástþór Örn svo stærri sæng og rúmföt í afmælisgjöf frá ömmu Kötu
og afa Ástþóri. Ástþór Örn hefur aldrei gert tilraun til að klifra upp úr rimlarúminu (sem okkur foreldrum hefur þótt ansi gott) en það verður
spennandi að sjá hvað hann mun verða hér mikið á rápinu þegar nýja rúmið verður komið í gagnið.
Hafið það öll gott!
Spilað á munnhörpuna!
Drekinn mættur á svæðið...
...sem reyndist bara Ástþór Örn undir teppi.
Ástþór Örn að verða ansi stór! Fékk fyrstu bókina senda frá Umferðaskólanum í dag.
Ástþór Örn var því ansi glaður að ná að lesa bókina með pabba sínum, sem er nú yfirleitt á Hellisheiðinni fram á kvöld en
kom í dag fyrr heim en venjulega.