4. febrúar

 

 

 

Kominn febrúar, afmælismánuðurinn! Ástþór Örn varð ansi glaður þegar hann sá að myndir af honum ásamt þremur félögum á Brekku voru komnar upp á vegg sem "Afmælisbörn mánaðarins"!! Það er annars búið að vera nóg að gera á leikskólanum. Það var myndataka, sem Ástþór Örn var ansi spenntur fyrir og við spennt að sjá útkomuna. Svo kom brúðuleikhús í heimsókn þar sem sýnt var leikrit um selinn Snorra. Á fimmtudaginn skruppum við svo í heimsókn til ömmu Kötu í leikhúsið. Það þykir Ástþóri Erni alltaf ansi spennandi. Núna hitti hann líka Borka úr Ronju, þótti það ansi merkilegt! Hér er svo Ronjuplakat komið upp á vegg og hann orðinn ansi spenntur að fá að fara aftur í leikhúsið. Í dag ætla þeir nafnar svo að fara út að labba með hundana. Góða helgi öll og hafið það gott. Þið munið að við erum með Gestabók er það ekki?!?!

Nóg að gera á stóru búi!!

 

Kalli á þakinu!! Ástþór Örn er búinn að vera ansi mikið með hugann við Kalla undan farna mánuði.

 

Afi Ástþór kom til okkar á fimmtudaginn og skoðuðu þeir öskudagsbúningabækling...Ástþóri Erni fannst nauðsynlegt

að vera í bangsabúningnum á meðan!!

 

Bangsimon og Ástþór Örn halda harmoniikutónleika

 

Í gær vildi Ástþór Örn aftur fara í bangsabúning og bættum við um betur og máluðum nebbann!

 

 

 

Og aftur orðinn Ástþór Örn!