29. janúar
Skemmtilegri helgi að ljúka. Ástþór Örn gisti hjá ömmu Kötu og afa Ástþóri á föstudag og skemmti sér ansi vel. Amma hans bauð honum fyrr í vikunni að gista þegar helgin kæmi og hann spurði á hverju kvöldi hvort hann mætti ekki fara og gista í Langagerðinu! Var því mjög glaður þegar loksins var komið að því að fara með smá farangur til ömmu og afa. Á laugardaginn fór ég svo með þeim nöfnum í bæinn. Þar ætluðu þeir að taka þátt í drekagöngu í tilefni kínverskra áramóta. En ár hanans var að ljúka og í dag er fyrsti dagur í ári hundsins. Ég rölti með þeim fyrsta hlutann, færði svo bílinn niður í bæ og labbaði svo á móti þeim. Ástþóri Erni fannst ansi gaman og skemmti sér vel, sem og afi Ástþór. Þeir alveg ákveðnir í því að taka þátt á næsta ári. Í morgun fórum við Ástþór Örn svo og sóttum ömmu Kötu og renndum austur fyrir fjall. Fórum og heimsóttum langömmu Önju á heilsuhælið. Hún bauð okkur þar í hádegismat og sýndi okkur allt saman, enda orðin heimavön búin að vera í þrjár vikur. Ástþór Örn var þar orðinn ansi kunnugur öllu enda var langamma dugleg að sýna langömmustrákinn sinn :o) Það var annars svo mikil þoka á leiðinni að við áttum alveg eins von á því að enda annars staðar en í Hveragerði!!! Vigdís og co. ekki heima þannig að við gátum ekki heimsótt þau í þetta skiptið.
Drekinn farinn af stað!
Þeir nafnar fylgjast með.
Ánægður á háhesti með gott útsýni!
Þegar komið var aftur í Langagerðið teiknaði afi drekann
Ástþór Örn tilbúinn að fara að lita
Við tókum svo Olsen olsen. Ástþóri Erni finnst ansi gaman að spila en vill helst engum reglum fylgja!!
Ástþór Örn er ansi upptekinn af Múmínálfunum og sérstaklega Morranum...sem var verið að leika hér!
Við mæðgin að lita í dag
Í gær kom Þórdís frænka í heimsókn færandi hendi. Þau eru að fara að flytja og því að fara í gegnum alls konar gamalt dót.
Ástþór Örn var því meira en lítið glaður með það að fá hrærivél og fleira í "búið" og alls konar fleira skemmtilegt dót.
Í dag er því búið að hræra í nokkrar kökur.
Að kúra með Tinnu. Reyndar var hann þarna í hlutverki "pabba" og Tinna "mömmu". Um daginn í Langagerðinu var hann einmitt
litla barnið og Trýna pabbinn!!!
![]()