25. janúar

 

 

Nokkrar myndir frá því að Ólíver frændi kom í heimsókn. Þeir frændur eru orðnir ansi góðir leikfélagar...en Ástþór Örn átti það til að vera heldur hranalegur stóri frændi. Ólíver var reyndar ekkert allt of kátur með lækningaræðið sem gripið hefur stóra frænda!

 

 

Þessi mynd lýsir stemningunni vel!

 

 

Ólíver var spenntur að fá að skoða þetta læknisdót...en það fikt gladdi "lækninn" ekkert voðalega.

 

 

 

Ólíver var ekkert á því að láta hlusta sig og skildi Ástþór Örn ekkert í því...ég minnti hann þá á að sjálfur væri

hann ekkert allt of samvinnuþýður þegar farið væri til læknis!

 

 

   

 

Ólíver fannst miklu skemmtilegra á hestbaki en í læknisskoðun

 

 

 

Ástþór Örn sat á læknisstofunni sem fastast, ef einhver þyrfti skyndilega á skoðun að halda!

 

 

 

 

 

Var að lokum orðinn hálf óþreyjufullur yfir því að engir sjúklingar létu sjá sig. Ég gladdi hann því

voðalega þegar ég kom vegna verks í hendinni og var ég umsvifalaust hlustuð, eyrun skoðuð, blóðþrýstingur mældur og mér gefið bangsameðal!!!!

 

 

 

Eftir að læknastofunni var lokað þennan dag var kominn tími á kaffitíma, skyr og ávexti!