23. janúar
Tíminn líður svo hratt, mér finnst ég alltaf hafa sett inn nýjar myndir og smá fréttir "í gær"! Af okkur er allt fínt að frétta. Þorrinn farið vel af stað. Á föstudaginn var Ástþór Örn mjög upptekinn af bóndadeginum. Við skildum ekki alveg í fyrstu þennan áhuga en áttuðum okkur fljótlega á því að hann tengdi þetta sveitinni! Hann sá fyrir sér mikla hátíð bænda, sem væru hér um allt með dýrin sín þennan dag. Við skruppum aðeins á rúntinn á föstudaginn og keyptum meðal annars smá bóndadagsglaðning handa Sigurði Ágúst og afa Ástþóri. Það var því ekki annað hægt en að Ástþór Örn fengi eitthvað líka í tilefni dagsins. Við fórum í dótabúð og hann rölti um allt en kom svo til mín og sagði "mamma, það eru engir bóndar hérna"! Hefur væntanlega haldið að þeir hefðu þyrpst í borgina á bóndadaginn! En við fundum þó þrjár gerðir bænda af báðum kynjum frá Playmo og valdi Ástþór Örn sér dýralækni/bónda með nokkur svín...ansi ánægður. Ástþór Örn fór svo seinni partinn á föstudag í Langagerðið þar sem hann gisti. Á leiðinni spurði hann mig "mamma...í dag er bóndadagur, en hvenær er læknadagur?". Ansi rökrétt?! Í Langagerðinu beið hans svo glaðningur frá ömmu Kötu, læknadót sem Ástþór Örn var mjög glaður með. Hann hefur ekkert verið sérlega hrifinn af því að láta hlusta sig, kíkja í eyrun og þess háttar þegar farið er til læknis en er sjálfur ansi duglegur að kalla fólk í skoðun til sín eftir að hann fékk töskuna.
Á laugardaginn var Ástþór Örn svo í rólegheitum í Langagerðinu og var í miðju pönnukökukaffi þegar við Sigurður komum að sækja hann. Í gær fórum við svo í bíó. Sáum Disney mynd sem heitir Litli kjúllinn. Ástþór Örn skemmti sér mjög vel. Það var aðeins undir lokin að hann varð leiður. Litli kjúllinn var þá að skamma pabba sinn, sem varð ansi sneyptur. Ástþór Örn var farinn að hafa áhyggjur af því hvað pabbinn var orðinn leiður og fór því að hágráta!!!! Það jafnaði sig nú fljótt er þeir kjúklingafeðgar sættust og hasarinn hófst á ný.
Nú er svo bara vikan fram undan með vinnu og leikskóla heimilisfólks. Hafið það öll gott.
Ástþór Örn kallaði á mig um daginn og var þá búinn að stilla nokkrum vinum upp og vildi láta taka mynd!
Þessi stubbur gekk alltaf undir nafninu "litla barnið" en hefur verið kallaður Ólíver (eða Ólille réttara sagt) í svolítinn tíma!!
Alltaf jafn gaman að teppinu sem hægt er að spila á!
Ástþór Örn á bóndadaginn!
Búið að kalla Sigurð Ágúst í skoðun.
Búið að hlusta og nauðsynlegt að kíkja í eyrun.
Einbeittur að teikna mynd af hestinum sínum, honum Frakk.