14. janúar
Við komum sterk inn á nýju ári í uppfærslu á nýjum myndum! Ástþór Örn náttúrlega mjög glaður yfir snjónum, ekki svo oft sem krakkar í Reykjavík fá orðið tækifæri til að leika sér í snjó!! Eftir leikskólann í gær fórum við á snjóþotu og svo í heimsókn í Langagerðið. Þar var enginn heima þegar við komum þannig að við lékum okkur í snjónum í garðinum þar til afi Ástþór kom. Líkt og á sumrin þegar manni þykir maður ekki getað hangið inni í sól ákváðum við að nýta snjóinn í dag, klæða okkur vel og fara út. Ferðinni var heitið í Húsdýragarðinn. Ástþór Örn hefur mikið verið að ræða afmæli nautsins Elds (heyrði af því í vikunni) og fannst okkur kjörið að bjóða Sigurði Ágúst í garðinn þar sem hann hafði aldrei komið þangað!
![]()
Smá hóll sem Ástþóri Erni fannst ansi gaman að fá að renna sér niður á þotunni
Og láta draga sig svolítið líka
Kominn í garðinn í Langagerðinu
Snjórinn hentaði ekki alveg til snjókarlagerðar en við bjuggum samt til einn pínu lítinn!
Píla komin í leikinn til okkar.
Það var ansi erfitt að ná Pílu á mynd þar sem hún skemmti sér ansi vel í snjónum á fleygiferð
Og var svo farin að athuga hvort ekki mæti leita uppi ævintýri í öðrum görðum!
Píla farin yfir í næsta garð og hinkrar eftir félaganum...þau náðust fljótlega aftur í rétta garðinn!!!!
Lögð drög að trjáhýsi sem stefnt er að því að byggja næsta sumar

Teiknað í rólegheitum
Ástþór Örn færði mér svo þessa mynd...ég er þessi fígúra með lappirnar!!!
Fengum okkur jarðarber með súkkulaði í eftirmat í gærkvöldi...Ástþór Örn ansi klínugur
Og áður en allt yrði í súkkulaðifingraförum var súkkulaðið þvegið af
Og kominn út í snjóinn aftur!
Eldur heimsóttur og honum færðar hamingjuóskir í tilefni tveggja ára afmælisins
Það voru ansi fáir á ferli í Húsdýragarðinum
Ástþór Örn biður alltaf um að fara og sjá silungana og krabbann!
Um daginn þegar við Ástþór Örn vorum í Húsdýragarðinum læddist köttur með okkur inn í fuglahúsið...
við höldum því að dúfurnar hafi munað eftir okkur því þær "földu" sig flestar þegar við mættum inn til þeirra!!
Um leið og við komum út úr Húsdýragarðinum kom snjóhríð...það var því notalegt að komast inn í bíl.
