12. janúar

 

 

Gleðilegt ár! Takk fyrir allar heimsóknirnar á gamla árinu! Svolítið langt síðan hefur verið uppfært. Við erum búin að hafa það afskaplega gott. Um jól og áramót vorum við mikið í Langagerðinu, borðuðum góðan mat og héngum á náttfötunum! Milli jóla og nýárs voru boð og fleira skemmtilegt. Sigurður Ágúst var að vinna einhverja daga og við mæðgin fórum meðal annars í húsdýragarðinn. Þar voru fáir á ferli og við Ástþór Örn fengum að hjálpa til við að mjólka, heilsa upp á litlu gríslingana og fleira. Verst að ná ekki að fara í gær og heilsa upp á Eld! Þegar við komum til hans sagði Ástþór Örn "Halló Eldur...manstu eftir mér?"!!!!!! Gott ef Eldur mundi ekki eftir þessum vini sínum.

Nýja árið hefur svo farið vel á stað, þrátt fyrir smá kvef sem var að hrjá Ástþór Örn. Hann var því heima mánudag og þriðjudag til að hlaða aðeins batteríin...náttfatadögum var því aðeins haldið við!!

 

 

Ástþóri Erni finnst rosa gaman að fá að hlusta á tónlist í heyrnartólum!

 

 

 

Úrval af náttfatamyndum!! Heima í rólegheitum. Húsið sett upp og haldið þar fínasta kaffiboð.

 

 

Dýrunum gefið!

 

 

 

Er eitthvað dúllulegra?

 

 

 

Gott að leggja sig aðeins með Pílu og Paddington.

 

 

 

Ástþór Örn fékk sjóræningjahöfn í jólagjöf og var það ansi kærkomin viðbót í sjóræningjasafnið. Hákarlinn hefur verið ansi

skæður, bitið gat á sokka og svo framvegis...þessi á árabátnum þarf því að gæta sín!

 

 

 

Ástþór Örn í herberginu sínu. Ég fór í leiðangur í gær til að skoða rúm. Í lok mánaðarins er stefnt að því að Ástþór Örn

verði farinn að sofa í "stóru-stráka-rúmi"!

 

 

 

Í dag fengum við að hafa Ólíver hjá okkur í smá tíma. Þeir frændur skemmtu sér ansi vel saman.

 

 

Ólíver skemmti sér vel í heimsókninni

 

 

 

Skipst á að fá að prófa Stjarna

 

 

 

Þeir frændur voru frekar fyndnir þegar þeir héngu inni í húsinu...sem hafði breyst í slökkviliðsstöð!!!

 

 

September 2004...

 

 

 

Janúar 2006!

 

 

smá fíflagangur í og með!!

 

 

Ólíver verður tveggja ára 6. mars og Ástþór Örn þriggja 19. febrúar!

 

 

 

 

Ólíver hafði mikinn húmor fyrir bröndurum stóra frænda...

 

 

 

...til dæmis þegar hann tók upp á því að leika rebba!!

 

 

 

 

Ólíver í stuði með blöðruna :o)