17. desember

Nú eykst jólaspennan með hverjum deginum hjá Ástþóri Erni! Hann er ansi spenntur á morgnana að kíkja í skóinn sinn og er spenntur að vita hvað er í jólapökkunum (þessum örfáu sem eru tilbúnir á þessu heimili!). Í kvöld var spenningurinn ekkert minni þegar hluti af jólakortunum var skrifaður...hann skrifaði meðal annars tvö á meðan ég sá ekki til!
Á leikskólanum hefur líka verið voða gaman og á föstudaginn var foreldrum, öfum og ömmum boðið að koma og horfa á helgileik og syngja nokkur jólalalög! Ástþór Örn kom svo heim með jólaföndur og pakka til okkar.
Í dag fórum við svo með ömmu Kötu aðeins í bæinn, settumst á kaffihús og röltum á Laugaveginum. Á morgun er svo stefnt að því að baka piparkökur og að ógleymdri jólaklippingu...sjáum til hvernig mun ganga. Sigurður Ágúst er svo því miður á kafi í vinnu, svo að hann hefur ekki getað tekið mikinn þátt í jólaundirbúningi og sjálf á ég eftir að fara yfir bunka af prófum, nóg að gera. En jólin koma það er víst...og við hlökkum voðalega til!
Piparkökur og smákökur eru ansi vinsælar. Í fyrra svelti Ástþór Örn sig nánast fyrir þær...
þykir við heldur með strangar reglur í ár!!
Tilraun til jólakortamyndatöku!!
Undir lokin var þessi sæti herramaður líka orðinn ansi þreyttur á tilstandinu við að ná góðri mynd.
Í vikunni komu afi Ástþór og amma Kata í laufabrauðsgerð. Ástþóri Erni og ömmu Kötu fannst
nú bara best að kúra undir teppi og láta okkur um útskurðinn!
Afi Ástþór með fyrstu kökuna
...svo vorum við bara svo upptekin að ekki voru teknar fleiri myndir af útskurði...
en hér eru brauðin tilbúin.
Fyrsta jólahreingerningin búin í herbergi Ástþórs Arnar. Komnar seríur í glugga og
allt á sinn stað!
Í morgun var harmonikan dregin fram og við sungum nokkur jólalög...ansi notalegt.
Ástþór Örn les fyrir Tinnu og kisu í morgun
Sat hjá mér í kvöld og fylgdist með jólakortaskrifum...ekki langt í svefngalsann!!