12. desember
![]()
Orðið ansi langt síðan hefur verið uppfært. Allt gott að frétta og við farin að hlakka til jólanna.
Ástþór Örn ansi spenntur að fá að taka þátt í að skreyta, baka og fleira. Nú er samt aðalspenningurinn skórinn í glugganum!
Hann var þó svolítið hissa í dag þegar hann áttaði sig á því að skórinn mætti vera í glugganum fram til jóla og að á hverri nóttu kæmi
glaðningur í hann...ef hann væri prúður!
Í próflestrinum sýndi Ástþór Örn mér mikla samkennd því hann var alltaf að lesa fyrir Brekku þegar ég
sat og las fyrir próf!!
Slappað af í "heita pottinum".
Og loksins var tími á að fá jólahúsið úr geymslunni og Ástþór Örn tengdi það að
úr því að "Mesú" væri kominn upp til okkar væri ekki langt í jólin :o)
Teiknistrákurinn Ástþór Örn
Í próflestrinum var Ástþór Örn duglegur að sýna ýmis skemmtiatriði...
fannst ég stundum heldur mikill dóni að krefjast þess að þau ættu öll að vera
með styttra móti!
En öll féllu þau í góðan jarðveg...í það minnsta hjá honum sjálfum!
![]()
Í vikunni fengum við Maríu, Huga og Guðrúnu Láru í heimsókn. Það var mikið fjör og skemmtilegt
að fá þau í smá aðventukakó.
Ansi gaman að fá að fara í jólasveinabúninginn. Bangsabúningurinn frá því á öskudaginn er
því kominn í tímabundið frí!
![]()
Á laugardaginn var hélt Álfaheiði jólaball í Hjallakirkju. Ástþór Örn var ansi spenntur dagana á undan
en var svo orðinn eitthvað fráhverfur þessu þegar átti að fara því hann hélt að hann væri að fara í jólaklippingu.
Eftir að hafa verið fullvissaður um að jólaklipping væri ekki á dagskrá þann daginn var hægt að koma sér af stað
á jólaballið. Ástþór Örn var ansi spenntur fyrir jólasveinunum. Á myndinni má líka sjá hana Karen Heklu sem Ástþór Örn
talar reglulega um hvað sé mikil "gúlla" (dúlla!).
Fór svo og kynnti sig fyrir jólasveininum.
Eftir jólaballið skruppum við aðeins í búð þar sem við rákumst á þennan
LEGO jólasvein. Ástþóri Erni fannst tilvalið að fá eina mynd af sér í fanginu á honum.
Eftir baðið í gærkvöldi var sest og teiknað svolítið, við fundum þessum fínu verkum svo stað en
fyrst vildi listamaðurinn fá eina mynd af sér með myndirnar.
![]()