16. nóvember

 

 

Ástþór Örn var sóttur af afa Ástþóri á leikskólann í dag, en það er mikið sport! Þeir nafnar búnir að eiga marga skemmtilega miðvikudaga. Í dag var stefnan tekin á Húsdýragarðinn til að skoða Eld. Ástþór Örn hélt nú að hann væri að fara að skoða alvöru eld og varð því ansi hissa þegar hann sá að Eldur er naut! Það var svo auðvitað kíkt á hin dýrin líka. Ég kom svo eftir kennsluna í Langagerðið þar sem amma Kata var að koma í veg fyrir að Ástþór Örn sofnaði :o) Borðuðum svo öll saman og það var ansi þreyttur herramaður sem fór í háttinn hér í kvöld!

 

 

Traktorar alltaf jafn vinsælir!

 

 

Að heilsa upp á nautið Eld.

 

 

 

Meira var það ekki! Hafið það gott.