15. nóvember

 

 

Jæja loksins nokkrar nýjar myndir og smá fréttir. Ástþór Örn fór í bíó í fyrsta skiptið í síðustu viku. Fór með afa sínum og ömmu, Gauta og Marteini og sá þrautagöngu  mörgæsanna. Ástþór Örn skemmti sér konunglega og hafði frá ýmsu að segja þegar heim var komið.

Síðasta vika hefur annars verið hálf undarleg þar sem ég var í mikilli törn í skólanum...og á móti ansi eftirgefanleg að leyfa Múmínálfagláp. Nú tekur próflestur við hjá mér og vonandi að við Ástþór Örn getum nú gert eitthvað skemmtilegt samhliða. Ástþór Örn er orðinn ansi spenntur fyrir jólunum...en gerir sér lítið grein fyrir því hvað jólin eru! Aðalspennan er náttúrlega að fá pakka og borða jólamat! Spennan er líka mikil yfir því að fá að taka jólahúsið neðan úr geymslu.

 

 

Oft ansi þreyttur þegar hann kemur af Álfaheiði enda hættur að leggja sig þar.

 

 

Mikil tilþrif með litina

 

 

þessi leikur útskýrði fyrir mér af hverju tússlitalokin vilja týnast...

 

 

 

Á leið í háttinn

 

 

En alltaf tími fyrir smá feluleik!

 

 

Ansi gaman að fá að kúra aðeins frammi áður en farið er í rúmið...

 

 

 

...og leika pínulítið líka!