5. nóvember
Kominn nóvember og tími til kominn að setja inn smá fréttir og myndir! Tíminn hefur liðið svo hratt og nú er Ástþór Örn orðinn ansi upptekinn af jólunum. Er ekki alveg að skilja af hverju við getum ekki látið þau koma bara í dag. En maður er ansi oft minntur á að bráðum komi jólatré og jólahúsið. Amma Kata kveikti vel í okkur í vikunni þegar hún kom frá London og færði okkur svo sætt jólaskraut sem verður gaman að setja upp.
Loksins fengum við líka Sirrý og Harald Daða í heimsókn um daginn. Mjög gaman að hitta þau og þeir litlu herramenn frekar ákveðnir báðir tveir og gaman að fylgjast með þeim. Á fimmtudaginn fékk svo afi Ástþór að sækja nafna sinn á Álfaheiði og þeir fóru víða og hafði Ástþór Örn frá mörgu að segja eftir bæjarferðina þeirra. Þar sem Sigurður Ágúst var á kvöldvakt á Hellisheiðinni borðuðum við Ástþór Örn í Langagerðinu og höfðum það notlegt þar!
Og nú er bara enn ein helgin komin og við ætlum að hafa það gott auk þess em einhverri vinnu þarf víst að sinna.
Fyrir rúmri viku var starfsdagur á Álfaheiði. Við Ástþór Örn byrjuðum þann dag á því að
kíkja í morgunkaffi til ömmu og afa sem voru á leið til London seinna um daginn.
Ástþór Örn ansi fínn í nýja jakkanum frá Tyrklandi!
Ástþóri Erni er aftur farið að finnast rosalega gaman að dansa og því dönsum við ansi mikið hér á daginn!
Hér eru tekin nokkur spor og ég myndaði svo lítið bæri á...kisa meðal annars tekin í danskennslu.
Seinni part föstudagsins fyrir viku. Ástþór Örn fylgist glaður með snjónum...stefndi allt í það
að það yrði hægt að fara út að renna sér og moka! Ég var aftur á móti ekkert allt of glöð þar sem
bíllinn okkar var enn á sumardekkjum.
Á laugardagsmorgninum vaknaði Ástþór Örn snemma og rauk beint út í glugga til að
athuga stöðuna á snjómálum, varð ansi glaður þegar hann sá að allt var enn hvítt.
Í Langagerðinu var hægt að moka fullt af snjó, mjög gaman!
Píla og Trýna voru mjög spenntar fyrir snjóþotunni. Við vorum hér að sækja þær stöllur í smá gönguferð en Pílu fannst
nú eitthvað að sér vegið að ætlast til að hún væri lengi í þessum kalda snjó!
Og mættur heim aftur og ekki var annað tekið í mál en að fá að vera úti!
En það var líka voða notalegt að koma inn og fara í heitt bað eftir útiveruna
Mjög upptekinn að synda í baðinu!
Ansi flottur í bílanáttfötunum sem afi og amma færðu honum frá London.
Hér var kaffihúsaþema í morgun, boðið upp á gulrótarköku og kakó.
Doddadót var efst á óskalistanum yfir það sem Ástþór Örn langaði í frá London. Afi og amma komu færandi hendi
með Dodda og Eyrnastóran. Það var ansi krúttlegt að heyra í Ástþóri Erni þegar við komum heim með þá úr Langagerðinu,
þegar við komum upp að húsinu heyrði ég "Doddi, hér er húsið mitt" þeim var svo sýnt herbergið hans og fleira! Þeir hafa svo að sjálfsögðu
fengið að fara með á Álfaheiði líka.
Ástþór Örn fær að máta finnsku húfuna hennar ömmu reglulega. En Kullervo langömmubróðir Ástþórs Arnar gaf
ömmu Kötu húfuna þegar hún var lítil. Já og ekki má gleyma að skyrtuna átti Sigurður Ágúst lítill!!