23. október
Kominn sunnudagur og tilvalið að setja inn nokkrar myndir og smá fréttir. Vikan hefur flogið ansi hratt og við búin að gera ýmislegt skemmtilegt. Síðasta sunnudag fórum við mæðgin ásamt Ásu, Kristínu Rós og Sigurlaugu á Kalla á þakinu. Ástþór Örn og Sigurlaug að fara í fyrsta skiptið í leikhús...við Ása vissum því ekki alveg hvort við myndum ef til vill þurfa að fara fyrr út! En þau frændsystkin sátu prúð allan tímann ansi spennt yfir uppátækjum Kalla. Fórum svo í afmæli til Gauta og Marteins sem héldu upp á fjögurra og tíu ára afmæli. Í vikunni fórum við svo á foreldrafund á Álfaheiði sem gekk vel. Ástþór Örn fékk góða umsögn og líkar greinilega voða vel á Brekku.
Í gær fóru þeir nafnar svo í göngutúr í Heiðmörk og afi Ástþór fékk sér svo kaffi með okkur. Við fórum svo í Langagerðið og borðuðum saman Dalslamb, spiluðum og spjölluðum. Í dag fengum við svo glaðning frá vini okkar í Tyrklandi sem var að senda Ástþóri Erni nýjan jakka. Við komumst vonandi með vönu Tyrklandsförunum næsta vor.
Ekki má svo gleyma því að í vikunni fór Ástþór Örn í klippingu! Fórum á fimmtudaginn en þá kom Ástþór Örn óklipptur út en ég nýklippt. Mér varð hugsað til Sigrúnar Erlu og saknaði hennar ógurlega!!! Það var pantaður annar tími og ákveðið að Sigurður Ágúst skyldi koma með hann þá. Ég fór og hitti Vigdísi, Ólíver og ömmu á kaffihúsi á meðan þeir feðgar fóru í klippingu. Eftir rúman klukkutíma komu þeir og hafði Ástþór Örn verið ansi óhress með þetta allt saman en þó tekist að klippa. Klippingin hefði líklegast tekist betur hefði hann verið svolítið prúður! Ekki það að Sigrúnu tókst nú að klippa hann ansi vel á mettíma þrátt fyrir mótmæli :o)
Lubbinn litli að fá sér ís!
Á leiðinni á Kalla á þakinu.
Hér eru reglulega haldnir harmonikutónleikar
Í vikunni bökuðum við ítlaskar möndlukökur með kaffinu...ansi vinsælt að fá að dífa í mjólk!
Fagur, fagur fiskur í sjó mjög vinsælt þessa dagana
...mikil spenna þegar kemur að högginu!
Um daginn fór ég og kíkti í Kisuna, þar fann ég skemmtilegan kisuglaðning handa Ástþóri Erni.
Ástþór Örn kisa!
Á föstudagskvöldið, nýklipptur! Voðalega þreyttur eftir leikskólann, átökin í klippistólnum og bæjarferð.
Við mæðgin aðeins að kúra yfir sjónvarpinu
Mættur í Langagerðið í gær, Píla ekki alveg að ná þessum látum í Ástþóri Erni
Heilsað upp á babúskurnar
Gaman að fylgjast með þröstunum fyrir utan gluggann
Ég er nú eiginlega enn að venjast þessum litla herramanni svona nýklipptum!