13. október

 

 

Ástþór Örn var úti að leika þegar ég kom á leikskólann í dag. Þegar við komum heim var ekki mikil stemning fyrir því að fara inn! Við sóttum því sandka- og skóladót og fórum út í garð. Notalegt veður og vonandi að fríska loftið hafi rekið úr mér hálsbólguna sem hefur verið að hrjá mig síðustu daga.

 

 

     

 

Fengum skemmtilega heimsókn í gær, þær mæðgur Ásu, Kristínu Rós og Sigurlaugu. Sigurlaug og Ástþór Örn stilltu sér upp fyrir myndatöku

og Sigurlaug tók utan um frænda...og komst um leið að því að hann er ákaflega kitlinn!!

 

 

Sætu systurnar úr eyjunum.

 

 

Og úti að leika í dag.

 

 

Bað mig að segja sér sögu og sat mjög upptekinn og hlustaði!

 

 

Minn maður var líka svolítið upptekinn af því sem var að gerast í háloftunum...

 

 

...vélarnar voru allar ýmist á leið til eða frá Rúmeníu!!!!!

 

 

Runnarnir fullir af fuglum! Gaman að fylgjast með þeim líka.

 

 

 

 

 

   

 

 

...eftir að hafa leikið okkur úti í tæpa tvo tíma drifum við okkur inn í hlýjuna og næst á dagskrá er smá kakósopi.