6. október

 

 

               

 

Þá er bara kominn október! Þetta líður aldeilis. Allt gott að frétta af okkur. Ástþór Örn kátur á leikskólanum og hefur "stækkað" heilmikið við að fara á stóru deildina! Undanfarið er hann oft búinn að spyrja mig hvenær hann megi koma í minn skóla. Sér þar væntanlega fyrir sér góða stemningu eins og á Álfaheiði. Í dag kom upp á að ég þurfti að skjótast að sækja gögn til kennarans míns og var Ástþór Örn ansi spenntur að fá loksins að koma með! Á leiðinni í bílinn hittum við nágrannakonu okkar, sem var að sjálfsögðu tilkynnt um hvað væri í vændum. Ég sagði honum að hann þyrfti að vera voða prúður og hann sagðist myndu vera það...en hann myndi samt segja halló við fólkið! Það var vel innan marka og þegar við keyrðum af stað heyrði ég hann æfa sig í aftursætinu "halló...ég heiti Ástþór Örn...hvað heitir þú?". Leiðin í vesturbæinn var því miður aðeins of löng fyrir þreyttan herramann sem var steinsofnaður þegar ég lagði bílnum. Ég reyndi að vekja hann og segja honum að við værum komin en þá rétt opnaði hann augun og sagði mér að hann gæti bara ekki farið í skólann...hann fékk því að hvíla sig á meðan ég stökk inn. En vonbrigðin þegar hann vaknaði...elsku karlinn minn trúði því bara ekki að hann hefði misst af skólanum hennar mömmu!! Við verðum bara að gera okkur ferð fljótlega aftur, en ég er hrædd um að hann verði nú fyrir vonbrigðum þar sem ekki er mikið um leik og söng svona almennt í skólanum.

 

 

Amma Kata og afi Ástþór færðu Ástþóri Erni þetta fallega tyrkneska teppi þegar þau komu heim.

Ástþór Örn á því orðið ansi fínt horn í stofunni þar sem hann situr í hægindastólnum og les...eins og afi eða

leikur sér á teppinu!

 

 

Í kvöld var ég beðin um að sækja harmonikkuna upp á hillu. Það er orðið ansi vinsælt

að setjast og spila og syngja nokkur lög.

 

 

"Gössi á mólkurgílnum..." sungið hástöfum!

 

 

Ansi stoltur

 

 

Á milli laga voru tekin nokkur ærslafull dansspor

 

 

Og klappað fyrir öllu saman!

 

 

Rosa gaman í baði. Ástþór Örn kominn með góðan lubba...við mæðgin erum á leið í klippingu.

Ástþór Örn saknar Sigrúnar Erlu mikið, en honum líst ansi illa á að fá annan en hana í það að klippa hárið.

 

 

...ég skömmuð fyrir að þvo hárið

 

 

Eftir bað bauð Ástþór Örn upp á súpu og "kappúsjínó"

 

 

Á leið í náttföt og háttinn. Þarna sést fíni Playmo hestvagninn sem Ástþór Örn fékk frá

afa Erni og ömmu Hillu þegar þau komu frá Þýskalandi.