29. september
Ástþór Örn búinn að vera heima í gær og í dag. Svo sem ekkert lasinn, en hefur verið með leiðinlegan hósta og ekkert sofið allt of vel þess vegna. Um leið og kólnaði kom astminn og því er búið að draga fram pústið, sem hefur verið í löngu sumarfríi. Þeir feðgar voru saman heima í gær og við mæðgin í dag. Á morgun ætlar Ástþór Örn á Brekku, fær að vera inni í rólegheitum. En það var nú bara ósköp ágætt að fá svona letidag saman, úr því að veikindin voru nú ekkert alvarleg.
Í gær litum við aðeins inn í Langagerðið til að taka á móti Tyrklandsförunum. Þau voru ansi sælleg og brún með fullt af gjöfum. Ástþór Örn varð voða glaður að sjá þau og eftir svona korter sagði hann þeim að þau mættu ekki fara aftur! Afi Örn og amma Hilla koma svo frá Þýskalandi á sunnudag. Ástþór Örn alveg hættur að skilja þetta útlandabrölt í öllum. Þegar hann þeysist hér um á þríhjólinu er hann líka iðulega á leiðinni til London eða Rúmeníu!!
Það síðasta sem spurt var um í gærkvöldi áður en var farið að sofa og það fyrsta sem spurt var um í morgun...
skútan!!!! Afi og amma fóru í skútusiglingu í Tyrklandi og færðu svo Ástþóri Erni þetta fína Playmobil sjóræningjaskip
í gær. Í morgun var skútan sett saman við mikinn fögnuð. Playmobil stendur fyrir sínu og var ég ekkert lítið spenntari en
Ástþór Örn að koma skipinu "á sjó"!!
Kisa fékk að sjálfsögðu að fara í smá siglingu
Allt að verða klárt. Ástþór Örn fékk líka Arsenalbúning...smá skot á æsta Arsenalaðdáandann pabba hans ;o)
Að sjálfsögðu á skipstjórinn á "skútunni" páfagauk og sýnir Ástþór Örn mér hér
hvernig hann flýgur!!
Alveg dáleiddur
Og búið að "sjósetja" og allt klárt
Eftir smá siglingu fannst Ástþóri Erni tilvalið að leyfa þessum nýju vinum á skipinu að kynnast sér
svolítið betur og sýndi þeim myndir frá því hann var minni! Ég heyrði svo þegar hann var að spyrja
páfagaukinn út úr hvað við fjölskyldumeðlimir heitum!!!
Og í peysunni sem ég var að klára að prjóna...mátti reyna!! Fékk þessa peysu frá afa og ömmu.
En ég stefni þó að því að endurnýja aðild mína að vissu prjónafélagi!
Þessir sjóræningjar eiga tvær voða fínar fjársjóðskistur.
Og leyndist ekki smá glaðningur í annarri þeirra?!? Þetta eru líka ansi góðir sjóræningjar hefur mér heyrst...
dansa línudans, passa vel upp á páfagaukinn og veiða lax sem Ástþór Örn eldaði svo fyrir þá í hádegismat. Um hálf átta leytið voru þeir
síðan lagðir til svefns!