25. september
Þá er september bara að verða búinn, líður ansi hratt. Ástþór Örn orðinn heimavanur á Brekku og þykir mjög gaman að fara í leikskólann á morgnana. Þau hafa líka verið að gera margt skemmtilegt þar, til dæmis taka upp kartöflur sem mínum manni fannst ansi spennandi!
Áttum annars fína viku og notalega helgi. Fórum aðeins í bæinn í gærmorgun og stungum okkur inn á kaffihús, en það er eitt af því skemmtilegasta sem Ástþór Örn gerir. Þannig að við erum alltaf til í að kíkja á kaffihús ;o)
Í gær fórum við mæðgin í afmæli til Maríu Kristínar frænku, sem varð fimm ára. Ástþór Örn fékk þar að sitja til borðs með stóru krökkunum og fannst það mikið sport. Það var reyndar svolítið fyndið þegar María Kristín tók upp pakkann frá okkur, þá sagði Ástþór Örn alveg gáttaður
"hún er að skemma pakkann frá okkur"!!! Hann var þó fljótur að átta sig á því að svona gengi þetta fyrir sig og var ansi spenntur að fylgjast með öllu fíneríinu sem daman fékk!
Í morgun skruppum við svo í Heiðmörkina. Röltum þar, skoðuðum haustlitina og nutum veðurblíðunnar.
Hér eru nokkrar myndir úr vikunni!
Ástþór Örn er stundum svolítið þreyttur þegar hann kemur heim, enda hvíldin ekki alveg eins löng og á Sunnu.
Nóg að gera á stóru heimili!!
Alltaf heitt á könnunni hjá Ástþóri Erni...reyndar er boð upp á Kappúsjínó!!!
Búið að draga fram fínu hestana
Aumingjans hesturinn að sligast undan þunganum...
Hér eitthvað verið að skammast í hestinum sem hafði gerst svo ósvífinn að kasta Rómverjanum af baki!
En það var sem betur fer í lagi með hann!
Nýstárlegir gripaflutningar
![]()
Það albesta, að hafa litla hægindastólinn uppi í stóra!
Rosa sniðugur!!
![]()
Sigurður Ágúst varla vaknaður...en búinn að kveikja á vinnutölvunni.
Annar nývaknaður :o)
Allt of gott veður til að hanga inni yfir tölvu og sjónvarpi, þannig að við drifum okkur af stað í Heiðmörkina
Veturinn aðeins farinn að minna á að hann er ekkert allt of langt undan
Ástþór Örn hljóp á undan okkur og fannst ansi gaman að vera úti í góða veðrinu
Ástþóri Erni fannst partur af ferðinni að setjast aðeins á bekkina sem við röltum fram hjá
Ástþór Örn var ekkert alveg á því að labba til baka að bílnum, vildi bara vera í Heiðmörk! Sigurður Ágúst var hér að reyna að fá
hann með okkur til baka...án árangurs. En við fengum brátt aðstoð!
Ég var farin að labba mér í áttina til baka og heyrði í þessari litlu kanínu koma út úr runnunum!
Þá var baráttan unnin og Ástþór Örn kom hlaupandi til að sjá þessa litlu skottu og lundin léttist til muna...
og allt í einu var bara lítið mál að rölta til baka í bílinn :o)