16. september

 

 

 

Fyrstu dagarnir á Brekku hafa gengið vel hjá Ástþóri Erni. Hann var reyndar ekkert alveg á því að hann væri ekki að fara á Sunnu fyrsta daginn! En allt hefur gengið vel og hann virðist ánægður. Fékk voða fína kveðju frá þeim á Sunnu, risa kort með kveðju og myndum sem hafa verið teknar af honum þar. Við fórum svo í dag og kvöddum þær og Ástþór Örn færði þeim smá kveðjuglaðning.

Í dag komu svo Ólíver og Vigdís í heimsókn til okkar, mjög gaman að sjá þau og minnti okkur á að við verðum nú að fara að verða duglegri að renna austur fyrir fjall. Sigurður Ágúst farinn að þekkja hluta leiðarinnar ansi vel, en hann hefur verið mikið á Hellisheiðinni undan farið.

 

 

 

 

Þeir frændur settu upp þessi fínu myndabros...sem voru svo löngu farin þegar myndavélin smellti loks af!

 

 

Ólíver gaf myndasmiðnum annan séns en Ástþór Örn var nú farinn að fylgjast með einhverju allt öðru

 

 

Þessi bangsabúningur er ansi vinsæll þessa dagana, en hann fékk Ástþór Örn fyrir síðasta öskudag.

 

 

 

 

Ástþóri Erni fannst nauðsynlegt að leyfa tveimur böngsum að vera með í bangsastemningunni!

 

   

 

Rosa fjör :o)

 

 

 

Ástþóri Erni finnst hann rosa töffari þessa dagana og blikkar mann og setur upp þetta fína bros!

 

 

Kominn úr búningnum og farinn í hinn sívinsæla útileguleik! Fyrir nokkrum mánuðum var aðalsportið að ferðast hér um með

dýnu, teppi og kodda og bjóða böngsum í útilegu...greinilega dottið í tísku aftur!

 

 

Myndabrosin vel æfð í dag :o)

 

 

Góða helgi!