13. september
![]()
Það er ýmist í ökla eða eyra...uppfært dag eftir dag eða ekki svo vikum skipti! Allt gott að frétta af okkur öllum. Ástþór Örn var síðasta daginn í dag á Sunnu á leikskólanum. Nú hafa þeir félagar verið nokkra dagsparta á Brekku og allt gengur vel. Á morgun er svo fyrsti dagurinn þar sem beint verður farið á stóru deildina. Við könnumst við marga krakka þar, þau sem voru á Sunnu þegar Ástþór Örn byrjaði þar. Honum virðist lítast vel á þetta sjálfum, enda eru þeir þrír vinir að færa sig þannig að þeir geta hughreyst hvorn annan. Ástþóri Erni gengur vel að hætta með bleijuna, er núna bara með hana á nóttunni en ekkert yfir daginn og ekki þegar hann leggur sig heldur. Ótrúlega fá slys komið fyrir, enda erum við dugleg að halda honum við efnið. Annars var nú fyndið í gær. Ég bakaði nokkrar lummur handa Ástþóri Erni og þegar við settumst svo niður með kaffið spurði hann mig "mega apar keyra bíl?"!!!!!! Við ræddum það svolítið og Ástþór Örn komst að þeirri niðurstöðu að þeir gætu bara hangið í trjám...og blómum!!
Tinna tekur þátt í bleijuátakinu!
Litli kroppur á nærbuxunum. Við getum sagt með sanni að við munum ekki sakna Pampers!!!
Tinna spilar ansi stóra rullu hér á heimilinu! Hún var í fyrsta jólapakkanum sem litla skottið tók upp á fyrstu jólunum og
tók Ástþór Örn ansi fljótt ástfóstri við hana :o)
Tíminn líður aldeilis!
![]()