11. september
Þá erum við komin heim úr sveitinni, en þessa helgi var verið að rétta. Ástþór Örn og amma Kata áttu notalegan dag á laugardaginn á meðan við hin fórum á fjallið að hafa uppi á kindum. Ástþór Örn varð nú svolítið spældur þegar hann áttaði sig á því að kindin sem hann mætti eiga yrði samt að vera í Dal...hann hélt hún fengi að vera hjá okkur heima í Kópavoginum!
Ástþór Örn fór í pottinn, var úti að leika og átti stórgóða helgi. Í vikunni er svo stefnt að því að þeir félagar á Sunnu færi sig á Brekku.
Ansi spenntur á leið í heita pottinn
Gatu lætur líða úr sér eftir göngur dagsins
Ansi notalegt!
Vorum úti í dag og mátti Ástþór Örn ekkert vera að neinu hangsi heldur var rokinn á undan okkur...til að skoða traktorinn!
En kom svo þegar hann sá að sækja átti Elfu og færa út í haga
Ástþór Örn færir Frakk hundasúrur í morgunmat
Léttir og afi Ástþór
Ástþór Örn fékk aðeins að setjast á bak á Frakk. Þegar hann var sestur tilkynnti hann Gauta frænda
að hann gæti ekki farið á hestbak á Frakk...hann væri of lítill!!!!
Svolítið mikið rok í dag en Ástþór Örn tók ekki annað í mál en að fá aðeins að fara í sandkassann áður en yrði farið inn
![]()